Lífeyrir aldraðra og öryrkja á að vera skattfrjáls!

Nú eru aðeins 26 dagar til þingkosninga.En ekkert er að gerast.þingið er steindautt enda komið fram yfir tíma og i rauninni er þingið umboðslaust.Það hangir á völdum,sem það hefur ekki.Í þessu sambandi skiptir engu máli hvort leiðtogi Framsóknar heitir Sigurður Ingi eða Sigmundur Davíð.Þeir eru báðir jafn gagnslausir og  jafn viljalausir í málefnum aldraðra og öryrkja.Sigurður Ingi minnist ekki á þau mál.Sigmundur Davíð  var aðeins að tala um  þessi mál en hvorugur þeirra gerði nokkuð.Þeir hjálpuðu báðir Bjarna Ben að gera ekki neitt!

Það er alveg ljóst,að leiðtogar stjórnarflokkanna ætla ekki að gera neitt til þess að efna kosningaloforðin,sem þeir gáfu öldruðum og öryrkjum fyrir kosningarnar 2013.

Þeir ætla að svíkja öll stærstu kosningaloforðin án þess að depla auga:þeir ætla að svíkja loforðið um að leiðrétta lífeyri vegna kjaragliðnunar krepputímans og þeir ætla að svíkja loforð Bjarna um að afnema tekjutengingar.Það þarf að hækka lífeyri um a.m.k. 23%, 56.580 kr, til þess að leiðrétta kjaragliðnunina.

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um almannatryggingar liggur enn óafgreitt í velferðarnefnd alþingis og í raunnni er það fallið á tíma.Frumvarpið hefur hlotið gífurlega gagnrýni fyrir það fyrst og fremst að  gera ekki ráð fyrir neinni hækkun til þeirra,sem eru á strípuðum lífeyri.Það var lagt fram með 0 hækkun þó ekki sé unnt að lifa af lægsta lífeyrinum.Einnig hefur það verið gagnrýnt mikið fyrir afnám frítekjumarka og fyrir að gera stöðu þeirra eldri borgara,sem eru á vinnumarkaði verri en áður. Það er nú rætt um að halda frítekjumarki og hækka lægsta lífeyri.Það verður áreiðanlega einhver hungurlús,sem lagt verður til,að láta aldraða og öryrkja fá.Það þarf að fella niður skatta af lífeyri. Það er algerlega út í hött að skammta lífeyrisþegum lágan lífeyru og taka síðan af honum stórum hlut í skatt.

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 3. október 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband