Lífeyrir þarf að vera 348 þúsund kr eftir skatt skv. útreikningum

Samkvæmt athugun,sem Ólafur Ísleifsson gerði fyrir Öryrkjabandlag Íslands um lífskjör í ljósi framfærsluviðmiða þarf  barnlaus einstaklingur, sem býr einn í eigin húsnæði,  348.537 kr. í ráðstöfunartekjur á mánuði (eða 482.846 kr. fyrir skatt) til að geta mætt eðlilegum útgjöldum. Á þeim tíma (2014) þegar álitsgerðin var unnin voru mánaðarlegar ráðstöfunartekjur örorkulífeyrisþega, sem býr einn og fær greidda heimilisuppbót, um 187.507 kr. á mánuði en 172.000 kr. hjá þeim sem bjó með öðrum, 18 ára eða eldri.

Ljóst er samkvæmt þessum útreikningm,að það er verið að skammta öryrkjum alltof lágan lífeyri og það sama gildir um aldraða.Stjórrnvöld eru að skammta öldruðum og öryrkjum lífeyri við fátæktar mörk. Það verður að leiðrétta þennan ósóma og það verður að gera það strax.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 

 


"Leiðrétting" Framsóknar misheppnuð.Ekkert afnám verðtryggingar!

Kona nokkur segir frá þvi á Facebook,að hún hafi sótt um Leiðréttinguna.En hún tók aldrei eftir því,sem hún fékk,þar eð það var svo lítið!Hins vegar tók hún vel eftir því, að þeir tóku af henni vaxtabæturnar.Hún stóð verr að vígi eftir en áður.Fréttatíminn hefur birt svipuð dæmi.En þeir sem þurftu ekki á neinni leiðréttingu að halda fengu stóra " leiðréttingu". Það voru þeir sem höfðu keypt gífurlega dýrt húsnæði og skulduðu mikið.Skattgreiðendur voru látnir aðstoða þá gegnum leiðréttinguna.Þessi aðgerð kom ranglátlega niður.

 Framsóknarflokkurinn lofaði að taka 300 milljarða af hrægömmunum til þess að nota í skuldaleiðréttingu.En í staðinn voru 80 milljarðar teknur af skattgreiðendum til þess að nota í þessa aðgerð.Og dregið var verulega úr vaxtabótum.Stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur notaði meira en 80 milljarða í millifærslur til þess að aðstoða skuldara,með vaxtabótum,sérstökum vaxtaafslætti,110 % leiðinni og sérstökum ráðstöfunum umboðsmanns skuldara.Allur lúðrablástur Framsóknar um ágæti "Leiðréttingarinnar" er  út í hött.Þetta var misheppnuð leið.Og ráðstafanir Jóhönnu voru drýgri fyrir skuldara.

Eins er með lofsöng Framsóknar um "afrek" í efnahagsmálum.Ríkisstjórn Jóhönnu kom verðbólgunni niður,hagvöxtur byrjaði strax 2012,atvinnuleysið var farið að stórminnka í lok stjórnartíma Jóhönnu og búið að greiða upp skuldir ríkissóðs að mestu leyti.Þegar núverandi ríkisstjórn tók við var viðsnúningur í efnahagsmálum byrjaður.Það eru þvi stolnar fjaðrir,þegar  Framsókn er að eigna sér mikil afrek í efnahagsmálum.Framsókn hefur þar engin afrek unnið en lofaði að afnema verðtrygginguna og sveik það.Einnig  hefur flokkurinn svikið aldraða og öryrkja og Sigmundur Davíð viðurkenndi það  rétt fyrir flokksþing Framsóknar.Sigmundur Davíð sagði,að meiningin hefði verið að bæta kjör lífeyrisþega í lok kjörtímabilsins en síðan er því einfaldlega sleppt og  aldraðir og öryrkjar skildir eftir.

 

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 4. október 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband