Kosningaloforðin við aldraða og öryrkja 2013 svikin!

 

Nú er stutt orðið í alþingiskosningar en þær verða 29.oktober.Athyglisvert er,að þegar komið er

að alþingiskosningum 2016, eru stjórnarflokkarnir ekki enn farnir að efna stærstu kosningaloforðin,sem þeir gáfu fyrir kosningarnar 2013! Frambjóðendur til alþingis virðast telja, að þeir geti lofað öllu fögru fyrir kosningar og svikið síðan  loforðin.

Stjórnarflokkarnir gáfu  stór kosningaloforð fyrir síðustu alþingiskosningar: Þeir lofuðu að hækka lífeyri til samræmis við hækkun lægstu launa á krepputímanum. Þetta var tekið mjög skýrt fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013. Á flokksþingi Framsóknarflokksins var samþykkt að leiðrétta  lífeyri vegna kjaragliðnunar  krepputímans. Með kjaragliðnun er átt við það, þegar laun hækka meira en lífeyrir. Ríkisstjórnin hefur ekki lyft litla fingri í því að efna þetta stóra kosningaloforð.Það hefur gersamlega verið svikið.Það er alvarlegt mál. Nú hafa kjósendur tækifæri til þess að refsa þeim fyrir svikin.

Stjórnarflokkarnir lofuðu einnig  að  afturkalla  kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá  árinu 2009. Þar var um 6 atriði að ræða. Núverandi ríkisstjórn afturkallaði 2 þessara atriða á sumarþinginu 2013: Frítekjumark vegna atvinnutekna, sem hafði verið lækkað,var hækkað á ný í 109 þúsund kr á mánuði.Grunnlífeyrir, sem hafði verið skertur hjá þeim efnameiri 2009, var leiðréttur á ný. Þessi 2 atriði voru  ódýr fyrir ríkissjóð og gögnuðust þeim sem voru vel stadddir.Annað gerði ríkisstjórnin ekki þá og gerði ekki meira  til þess að efna kosningaloforð, sem hún hafði gefið öldruðum og öryrkjum.Eitt atriði af þessum 6 rann út af sjálfu sér.Það var tímabundið;   hækkun á skerðingarhlutfalli tekjutryggingar.Sú  hækkun gekk til baka 2014.

Bjarni Benediktsson gaf  öldruðum stórt kosningaloforð í bréfi  2013. Hann lofaði að afnema alla tekjutengingu lífeyris aldraðra. Þetta var  stórt kosningaloforð; skerðingar valda öldruðum mikilli kjaraskerðingu.  Bjarni hefur ekki efnt þetta loforð .Þetta loforð þýðir afnám skerðingar lífeyris aldraðra vegna greiðslna úr lífeyrissjóði og vegna tekna af atvinnu og fjármagni. Það litla, sem var gert til leiðréttingar  útreiknnigs grunnlífeyris, skiptir litlu máli í þessu sambandi. Eftir,sem áður voru framkvæmdar miklar skerðingar á lífeyri aldraðra hjá TR vegna  greiðslna úr lífeyrissjóði.Allur fjöldinn, sem var með lítinn lífeyrssjóð eða í meðalagi stóran, sætti mikili skerðingu. Og tekjutengingar vegna tekna af fjármagni og atvinnu  í fullu gildi.Ekki hefur verið staðið við kosningaloforð Bjarna Benediktssonar við aldraða.Það litla, sem ríkisstjórnin leiðrétti á sumarþinginu 2013 er tekið til baka í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um almannatryggingar.Grunnlífeyrir felldur niður og frítekjumark vegna atvinnutekna afnumið!

Yfirskrift fráfarandi ríkisstjórnar er : Svik,svik,svik.

 

Björgvin Guðmundsson

Fréttablaðið 6.oktober 2016

 


Bloggfærslur 6. október 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband