Dagpeningar:Ráðherrar fá ekki aðeins fulla dagpeninga heldur einnig greiddan gistikostnað sérstaklega!

 

Miklar umræður eiga sér nú stað um fæðis-og dagpeningagreiðslur til  sjómanna. Talið er,að samkomulag um slíkar greiðslur gæti leyst sjómannadeiluna.Ýmsar stéttir,sem þurfa að sækja vinnu fjarri heimilum sinum eða fara á fundi erledis  fjarri heimili sínu  geta fengið dagpeninga.Einnig er algengt að greiddir séu fæðispeningar. Allar þessar greiðslur eru skattfrjálsar.

Nú ber svo við,að spekingar segja,að  störf sjómanna fjarri heimilum sínum séu allt annars eðlis en störf ríkisstarfsmanna,flugmanna og annarra sem vinna fjarri heimilum sínum. Ríkisstarfsmenn,flugmenn og fleiri fari í tilfallandi ferðir en sjómenn ekki. Skipið sé þeirra starfsstöð.Og aðeins þeir sem fari i tilfallandi ferðir eigi að fá  skattfrjálsa dagpeninga. Ég kalla þetta hundalógik. Dagpeningar eiga yfirleitt að  vera fyrir kostnaði eins og mat og gistkostnaði í ferðalögum fjarri heimili.Ráðherrar láta sér þó ekki duga að fá dagpeninga  í ferðalögum erlendis heldur fá þeir einnig greiddan gistikostnað sérstaklega,risnukostnað og símtöl.Það er því ekki aðeins ein regla i gildi heldur fleiri og auðvelt fyrir ráðherra að ákveða að fæðispeningar eða dagpeningar sjómanna vegna fæðis skuli vera skattfrjálsir.Þetta er aðeins spurning um vilja.

 

Björgvin Guðmundsson


Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara og öryrkja!

 

Hvað þarf eldri borgari mikið sér til framfærslu? Í dag hefur sá sem  þarf að treysta eingöngu á almannatryggingar, 197 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.(Þeir,sem eru í hjónabandi eða sambúð).Þetta er ekki prenvilla.Lífeyrir þessa fólks nær ekki 200 þúsund kr á mánuði eftir skatt á sama tíma og  sagt er ,að góðæri sé  á Íslandi og meðaltekjur í þjóðférlaginu eru 620 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. 

Miklar launahækkanir sl. 2 ár 

Undanfarin 2 ár hafa orðið gifurlega miklar launahækkanir í landinu.Launafólk,faglært og ófaglært,  hefur fengið hækkanir á bilinu 14,5-55%.Alþingismenn fengu 55% launahækkun á síðasta ári,ráðherrar fengu 44% hækkun og æðstu embættismenn fengu  allt að 48%  hækkun  á síðasta ári,sem  gilti afturvirkt í 18 mánuði! Á meðan þessar miklu hækkanir áttu sér stað voru aldraðir og öryrkjar skildir eftir.Þeir fengu mjög litla hækkun á lífeyri sínum.Um áramótin fengu þeir eldri borgarar,sem nú hafa 197 þúsund krónur á mánuði 12 þúsund króna hækkun á mánuði.Það voru öll ósköpin. 

Lífeyrir dugar ekki fyrir öllum útgjöldum

 Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af 197 þúsund krónum á mánuði.Húsaleiga hefur stórhækkað svo og allur húsnæðiskostnaður.Algeng húsaleiga fyrir 2ja-3ja herbergja íbúð er í dag 130-200 þúsund kr á mánuði. Þegar búið er að borga húsaleigu,rafmagn og hita er lítið eftir fyrir öllum öðrum útgjöldum,mat,fatnaði,hreinlætisvörum,síma,sjónvarpi og  rekstri tölvu. Erfitt eða ókeift er að reka bíl af þessum lága lífeyri.Ef ekki er um bíl að ræða þarf að borga í strætisvagnagjöld eða annan samgöngukostnað. Lífeyrir er svo naumt skammtaður til aldraðra, að algengt er, að hann dugi ekki fyrir öllum brýnustu útgjöldum.Læknishjálp og lyf verða oftast útundan og stundum matur.Slík meðferð á öldruðum er að sjálfsögðu brot á stjórnarskránni, brot á mannréttindum. 

Naumt skammtað til aldraðra

Hvernig stendur á því,að velferðarlandið Ísland skammtar eldri borgurum svo nauman lífeyri og hér hefur verið lýst? Það er óskiljanlegt.Ráðamenn  tala mikið um það, að efnahagsmálin séu í góðu lag ; góðæri sé mikið. En góðærið hefur alveg farið framhjá eldri borgurum.Lífeyrir á ekki aðeins að duga fyrir brýnustu nauðsynjum; lífeyrir á að duga til þess að aldraðir geti lifað með reisn þetta síðasta skeið ævi sinnar.Þeir þurfa að geta veitt sér eitthvað og gefið barnabörnum sínum jólagjafir og afmælisgjafir. 

Lyfta þarf kjörum aldraðra myndarlega!

Það hefur verið reiknað út, að hin Norðurlöndin verji um það vil 100 milljörðum meira á ári til eldri borgara,öryrkja og velferðarkerfisins  í heild en gert er hér á landi.Þó er hagvöxtur meiri hér en þar og hefur verið um skeið og Ísland er ekki síður ríkt en hin Norðurlöndin, ef til vill ríkara.Hvers vegna eru kjör aldraðra og öryrkja þá svo miklu verri hér en á hinum Norðurlöndunum.Ég tel,að að sé vegna skilningsleysis íslenska stjórnmálamanna á vanda eldri borgara og öryrkja  á Íslandi.Hér þarf að verða breyting á .Það er kominn tími til þess að lyfta kjörum aldraðra og öryrkja myndarlega upp. Ég tel,að lágark fyrir eldri borgara og öryrkja sé 400 þúsund á mánuði fyrir skatt,305 þúsund eftir skatt.Það er engin leið að lifa sómasamlegu lífi af lægri upphæð.

Björgvin Guðmundsson

fyrrverandi borgarfulltrúi

 

Birt í Mbl. 16.feb.2017

www.gudmundsson.net

 

Bloggfærslur 16. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband