Kjör aldraðra skert á margan hátt um áramót!

 

Það er alltaf að skýrast  betur og betur myndin af því, sem gerðist hjá öldruðum og öryrkjum um síðustu áramót,þegar fyrrverandi ríkisstjórn þóttist ætla að stórbæta  lög um almannatryggingar.Helstu atriðin eru þessi:

4500 eldri  borgarar misstu grunnlífeyri sinn. Auk þess  varð stór hluti eldri borgara fyrir skerðingu á lífeyri sínum frá TR.Þeir eldri borgarar,sem voru á vinnumarkaðnum sættu aukinni skerðingu tryggingalífeyris og urðu margir að hætta störfum af þeim sökum.Lífeyrir þeirra eldri borgara,sem eingöngu hafa lífeyri   frá almannatryggingum og engar aðrar tekjur,átti upphaflega ekki að hækka neitt. Frumvarpið um almannatryggngar var lagt fram með o króna hækkun. Og loks þegar ákveðin var smávægileg hækkun var það alger hungurlús: Lifeyrir þeirra eldri borgara,sem eru í hjónabandi eða  sambúð hækkaði um  12 þúsund kr á mánuði og hjá einhleypum var hækkunin 20 þúsund  á mánuði.Til þess að kóróna ósómann voru síðan 5 milljarðar teknir af eldri borgurum í óheimilum skerðingum fyrstu 2 mánuði ársins.

Björgvin Guðmundsson

 


Bloggfærslur 21. mars 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband