Stjórnvöld niðast á öldruðum!

 

 

Í þessari grein verður fjallað um 3 dæmi þess hvernig stjórvöld níðast á öldruðum.

Fyrsta dæmið er frá 2013.Tryggingastofnun ríkisins og  Ríkisendurskoðun gripu þá til þess ráðs að nota skoðunarkönnun um „bótasvik“ í sveitarfélögum í Danmörku sem vísbendingu eða sönnun um slik svik á Íslandi.Þetta var fáheyrt,þar eð ekki var einu sinni um rannsókn að ræða í Danmörku heldur skoðunarkönnun.M.ö.o: Danskir lífeyrisþegar voru spurðir hvort þeir teldu,að bótasvik væru stunduð í umræddum sveitarfélögum.Að sjálfsögðu skiptir slík skoðunarkönnun í Danmörku engu máli fyrir Ísland. En það furðulega gerðist,að ríkisendurskoðandi taldi,að umrædd skoðunarkönnun i Danmörku væri eðlilegt viðmið fyrir Ísland.Í ljós kom þó,að raunveruleg bótasvik á Íslandi umrætt ár voru lítil sem engin.Það var því verið að ljúga bótasvikum upp á aldraða og öryrkja á Íslandi.Það er alvarlegt mál og ríkisendurskoðun og Tryggingastofnun ættu að biðjast afsökunar á þessari framkomu við íslenskt lífeyrisfólk.

Ólögmæt skerðing  5 milljarðar 2017!

Annað dæmið fjallar um það, að Tryggingastofnun með samþykki velferðarráðuneytisins ákvað að skerða lifeyri aldraðra frá almannatryggingum  í janúar og februar 2017  um 5 milljarða enda þótt heimild til skerðingar hefði fallið út úr lögunum við afgreiðslu þeirra á alþingi.Tryggingastofnun og velferðarráðuneytið stóðu að þessu athæfi gagnavart eldri borgurum og  báðust ekki einu  sinni afskunar á tiltækinu.Málaferli eru nú í uppsiglingu vegna þessarar ólögnmætu skerðingar á tryggingalífeyri aldraðra.Flokkur fólksins ákvað að fara í mál og er undirbúningur nú í fullum gangi.Telja má nokkuð öruggt,að þetta mál vinnist og gangi það eftir er greið  leið til þess að stefna  ríkinu vegna fyrri skerðinga.

Lífeyirisfólk skattlagt um 50 þúsund á mánuði!

Þriðja dæmið fjallar um persónuafsláttinn og skattleysismörkin frá 1988 og fram á þennan dag.Árið 1988 lýstu stjórnmálamenn þvi yfir,að persónuafsláttur ætti að fylgja launa-og verðlagsvísitölu.Við það hefur ekki verið staðið.Ef það hefði verið gert væru elli-og örorkulífeyrisþegar skattlausir í dag. En  þeir greiða 50 þúsund á mánuði í skatt .Ríkið lætur lífeyisfólk fá lifeyri með annarri hendinni en tekur jafnmikið til baka með hinni.Þetta er svívirða.Í Noregi er lifeyrir skattfrjáls.Þannig á það að vera hér.

Öll þessi framangreind 3 dæmi leiða í ljós,að stjórnvöld hér á landi eru stöðugt að níðast á öldruðum og öryrkjum.Mál er að linni og leiðrétt verði fyrir liðinn tíma.

 

Björgvin Guðmundsson

viðskiptafræðingur

bIRT Í fRÉTTABLAÐINU 12.APRÍL 2017

 

 

 

 


Bloggfærslur 13. apríl 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband