Laun hækka en lífeyrir aldraðra og öryrkja ekki



     Ekkert bólar á þvi, að ríkisstjórnin ætli að bæta kjör aldraðra og öryrkja á þessu ári í kjölfar nýrra kjarasamninga 1.mai.Kjör láglaunafólks voru orðin svo bágborin, að verkalýðshreyfingin og
meirihluti þjóðarinnar taldi nauðsynlegt að hækka lágmarkskaup myndarlega. Sömu rök gilda fyrir nauðsyn þess að hækka lífeyri  aldraðra og öryrkja verulega .Allur þorri almennings telur jafnmikla nauðsyn á að hækka lïfeyri þeirra eldri borgara, sem verst eru staddir eins og að hækka lægstu laun. En rÍkisstjórnain lætur sér sæma að halda lífeyri óbreyttum, þegar laun allra í þjóðfélaginu eru að hækka! Ríkisstjórnin heldur lífeyri aldraðra og öryrkja niðri í 8 mánuði. Ég veit ekki hvað á að  kalla þetta atferli rîkisstjórnarinnar en það er líkast
því sem það sé verið að níðast á lífeyrisþegum.

Jafnmikil kjaragliðnun í ár og á  öllum krepputímanum!

Þegar kaup   allra launþega hækkar en ekki lífeyrir aldraðra og öryrkja verður kjaragliðnun. Lífeyrir aldraðra og öryrkja dregst aftur úr launum.Þetta gerðist á krepputímanum 2009-2013.T.d hækkuðu laun um 16%  árin 2009 og 2010 en lífeyrir aldraðra og öryrkja frá TR hækkaði ekki um eina krónu á sama tímabili. Nú endurtekur sagan sig. Lágmarkslaun hækkuðu um 31.000 kr 1.mai sl en lífyrir hækkaði ekki um eina krónu.

Ráðherrunum finnst þetta í lagi!

Og svo virðist sem râðherrunum finnist þetta allt í lagi.Þeir kjafta bara um, að lífeyrir eigi að hækka einhver ósköp seinna, 8 mànuðum seinna en laun hækkuðu! Og  forsætisráðherrann talar fjálglega um methækkun lífeyris, eitt metið enn! Hann talar um mestu hækkun í sögunni. Aldraðir og öryrkjar hafa hins vegar ekkert gagn af pappirshækkunum. Þeir taka ekkert mark á neinu tali um hækkanir fyrr en þeir finna þær í buddunni. Og það verður ekki í bráði! Síðan er það ekki rétt, að um einhverja "methækkun" sé að ræða. Jóhanna Sigurðardóttir hækkaði lífeyri aldraðra og öryrkja um tæp 20% um àramòtin 2008/2009, þ.e þeirra,sem voru verst staddir og hún hækkaði hjá hinum um 9,6%.Og þetta gerði hún án þess að masa um það í marga mánuði áður en það kom til framkvæmda. Aldraðir krefjast þess að fá hækkun strax. Þeir geta ekki  beðið.Það er ekki erfiðara að samþykkja strax hækkun til aldraðra og öryrkja en að samþykkja hátt framlag til móttöku flóttamanna.Afgreiðslan á flóttamannaframlaginu leiðir í  ljós,að vilji er allt sem þarf.

Aldraðir fái það sama og launamenn


Láglaunafólk fékk 14.5% hækkun á launum sínum 1.mai og síðan var samið um, að laun verkafólks mundu hækka í 300 þúsund á mánuði á 3 árum. Aldraðir vilja fá nákvæmlega sömu hækkun og á sama tíma.Það var samþykkt á landsfundi LEB og í kjaranefnd FEB.Og þetta er sanngirnis- og rêttlætismál
.
Birt í Fréttablaðinu 8.okt.2015

Björgvin Guðmundsson form. kjaranefndar FEB í RVK og nágrenni





 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband