Ríkisstjórnin að níðast áfram á lífeyrisþegum: Laun: 20,7% hækkun.Lífeyrir 12,7%!

Lífeyrir aldraðra og öryrkja frá almannatryggingum á lögum samkvæmt að hækka í samræmi við launaþróun.Eftir þessu hefur núverandi ríkisstjórn ekki farið.Lítum á staðreyndir málsins: Lágmarkslaun hækkuðu sl ár um 14,5%?(1.mai)en lífeyrir hækkaði aðeins um 3%.Hér vantar 11,5 prósentustig.Ef litið er á hækkun annarra launa vantar meira,þar eð önnur laun hækkuðu miklu meira,t.d.fékk Fiskvinnslufólk 30% hækkun byrjunarlauna,nýlæknar fengu 25% hækkun og kennarar og blaðamenn fengu meiri hækkun en verkafólk.Nú hefur verkafólk og aðrir launþegar samið um launahækkun yfirstandandi árs:Laun hækka um 6,2% strax frá áramótum? Þetta þýðir að laun hækka samanlagt um 20,7% á árinu 2015 og 2016 en lífeyrir hækkar aðeins um 12,7% bæði árin.Hér vantar 8 prósentustig.Auk þess ber að taka með í reikninginn,að verkafólk fékk 14,5% launahækkunina frá 1.mai en lífeyrisþegar ekki fyrr en um áramót.Allir aðrir fengu afturvirkar launahækkanir.Ríkisstjórnin skuldar því lífeyrisþegum nú 8% hækkun lífeyris og uppbót fyrir tímabilið 1.mai sl til áramóta.Auk þess skulda stjórnarflokkarnir öldruðum 20% hækkun lífeyris vegna kjaragliðnunar 2009-2013.

Ef einhver manndómur hefði verið í ríkisstjórninni hefði hún leiðrétt lífeyri aldraðra og öryrkja strax frá áramótum með því að hækka lífeyrinn um 8% til viðbótar þessum 9,7% og gert upp við lífeyrisþega uppbót fyrir tímabilið 1.mai-31.desember 2015.En ríkisstjórnin ætlar áfram að níðast á lífeyrisþegum og velur þann kost að berja sér á brjóst og tala um að hún hafi unnið mikil afrek í lífeyrismálum aldraðra og öryrkja.Lífeyrisþegar geta ekki látið valta yfir sig endalaust.Það er nóg komið.

Björgvin Guðmundsson

Www. gudmundsson.net 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir hvert orð.

Og þessi ríkisstjórn sem nú er við völd hefur engan áhuga á því að sýna ellilífeyrisþegum og öryrkjum neina sanngirni. Ekkert mun breytast fyren þessu rusli verður komið frá.

Hér er hægt að selja ríkiseignir til skyldmenna og flokksgæðinga bakvið luktar dyr, en að gera vel við eldri borgara sem hafa skilað sínu til samfélagsins, það virðist ekki vera hægt. Samt eiga virðast nægir peningar vera til í ýmis gæluverkefni ráðherra og skattalækkanir á þá sem best standa fjárhagslega hér á landi.

Koma þarf þessum spilltu einstaklingum frá völdum. Það verður vonandi gert í næstu kosningum.

Einar (IP-tala skráð) 24.1.2016 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband