Stærsta kosningaloforðið frá 2013 svikið!

 

 

 

Stjórnarflokkarnir hafa enn ekki efnt stærsta kosningaloforðið, sem þeir gáfu öldruðum og öryrkjum fyrir kosningarnar 2013 nú, þegar komið er að kosningum 2016. Hvað var stærsta kosningaloforðið? Jú,báðir stjórnarflokkarnir lofuðu að leiðrétta lífeyri  aldraðra vegna kjaragliðnunar krepputímans. Til þess að standa við þetta loforð þarf að hækka lífeyrinn um 23% eða um 56.580 kr á mánuði fyrir skatt.Það er athyglisvert, að þessi hækkun, efndir á þessu loforði, er nákvæmlega sú hækkun, sem ríkisstjórnin lofar nú að  komi til framkvæmda árið 2018. Samkvæmt kosningaloforðinu á hún að koma til framkvæmda strax og i rauninni áttti hún að koma til framkvæmda strax eftir kosningar 2013  sbr loforð  Sjálfstæðisflokksins.Þessi dráttur á framkvæmd loforðsins hefur kostað aldraða og öryrkja tugi  milljarða kr.

 

Allt bendir til þess, að það hafi aldrei verið ætlun Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að efna þetta stóra kosningaloforð. Svo virðist sem það hafi átt að blekkja kjósendur. Engin leið er að vita hvað margir kusu stjórrnarflokkana  út á þetta loforð. Þeir geta verið margir.Ef til vill hefur þetta loforð komið stjórnarflokkunum til valda.Athyglisvert er, að stjórnarflokkarnir hafa aldrei minnst á þetta loforð eftir að þeir komust til valda. En stjórnarflokkarnir gáfu fleiri loforð fyrir kosningar 2013.Þeir lofuðu að afturkalla alla kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá árinu 2009. Þar var um 6 atriði að ræða. 3 voru afturkölluð en hin 3 hafa ekki verið afturkölluð enn. Auk þess gaf Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins mjög stórt kosningaloforð til aldraðra.Hann lofaði að afnema allar tekjutengingar lífeyris aldraðra hjá almannatryggingum. Hann hefur ekki staðið við það. Ríkisstjórnin leiðrétti útreikning grunnlífeyris en fyrri ríkisstjórn hafði skert hann hjá þeim,sem höfðu mjög háan lífeyri úr lífeyrissjóði. Grunnlífeyrir féll niður hjá þeim, sem voru með 332 þúsund kr og meira á mánuði úr lífeyrissjóði.Þetta var fært til fyrra horfs. Það hrökk skammt til þess að afnema tekjutengingar vegna lífeyris aldraðra. Skerðingar lífeyris voru einnig miklar vegna atvinnutekna og

fjármagnstekna.Samkvæmt loforðinu átti af afnema allar skerðingar. Það loforð var ekki uppfyllt.

 

Ný lög um almannatryggingar,sem samþykkt voru á alþingi,  veita hvergi nærri nægar kjarabætur.Aldraðir i hjónabandi , sem eingöngu hafa lifeyri frá TR eiga að fá 195 þúsund á mánuði eftir skatt 2017. Þetta er svo lágt,að það er til skammar. Einhleypir eldri  borgarar í sömu stöðu eiga að fá 227 þúsund kr á mánuði eftir skatt; einnig skammarlega lágt.

 

Björgvin Guðmundssin viðskipafræðingur

Birt í Fréttablaðinu 27.oktober 2016

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það liggur fyrir vel útfrt fruvarpí þessum málum, sem sennilega heði verð afgreii ef ekki væri fyrir tilganslaust og ógrundað upphlaup victri fokkanna og kröfu um stjórnarsit án nokkurrrar halbærrar ástðu. Frumvarp sem miðar að því að bæta kjör aldrara um helming og afnema tekjutengingu bóta.

Þei hafa ekkert svikið, en það er allt gert af stjórnaranstöunni til að koma í veg fyrir rettlátar breytingar. Þetta er flókið mál þar sem lífeyrissjóðir koma að, en öllum er ljóst að bóta er þörf.

Mér finnst raunar heilbrigðara og réttlatara að hætt yfirboðum um barnabætur og styrki til fólks á besta vinnualdr og færa fókusinn á eftirlauna og lífeyrisþega, en ein og ég segi er verið að vinna marvisst að því.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.10.2016 kl. 07:53

2 Smámynd: Björgvin Guðmundsson

Sæll Jón! Það þýðir ekki að lemja hausnum við steininn. Stærsta kosningaloforðið var svikið.Það er staðreynd. Frumvarpið,sem ríkisstjórnin lagði fram um almannatryggingar var afgreitt. Það var ekkert í því um að afnema tekjutengingu lífeyris.  

Bestu kveðjur

Björgvin G.

Björgvin Guðmundsson, 27.10.2016 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband