Geir: Vil ekki ganga í ESB

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á opnum fundi í Valhöll í dag, að hann væri ekki í vafa um að þegar vegnir væru kostir og gallar við aðild Íslands að Evrópusambandinu væru kostirnir léttvægari.  „Þess vegna vil ég ekki ganga í Evrópusambandið," sagði Geir.

Hann sagði á fundinum að stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefði í stórum dráttum gegnið mjög vel. Skoðanamunur væri þó einhver milli flokkanna eins og eðlilegt væri. Þá væri flokkarnir ósammála um eitt stórt mál: Evrópumálin, en Samfylkingin hefði á stefnuskrá sinni að ganga í Evrópusambandið en ekki Sjálfstæðisflokkurinn.

Geir sagði, að ef Ísland væri í Evrópusambandinu hefðu stjórnvöld ekki haft jafn mikið svigrúm til að laga sig að breytingum í alþjóðlegu umhverfi eins og gert hefði verið á síðustu mánuðum. Þá hefði gengi gjaldmiðilsins verið fast og vextirnir ákveðnir í Seðlabanka Evrópu. Eini vettvangurinn, þar sem svigrúm gæfist, væri á vinnumarkaði, þar sem hægt væri að segja fólki upp og auka þannig atvinnuleysi. „Viljum við það? Ég vil það ekki," sagði Geir.

Hann sagði, að ýmsir kostir fylgdu aðild að Evrópusambandinu en einnig ókostir og þetta yrði að vega og meta og byggja síðan niðurstöðuna á því hvað væri best fyrir Ísland. „Við leggjum á vogarskálar öll atriði sem skipta máli. Í mínum huga er ekkert vafamál að kostirnir eru léttari á þessari vogarskál en gallarnir. Þess vegna vil ég ekki ganga  í Evópusambandið," sagði Geir.

Hann sagði það ranghugmyndir, að Íslendingar yrðu einhver áhrifaþjóð innan ESB. Þeir hefðu á grundvelli ESS samningsins ákveðna stöðu gagnvart ESB, „en ég held að ef við værum komnir inn í sambandið og sætum við þetta stóra borð yrði lítið hlustað á okkar rödd," sagði Geir. 

Hann sagði að nú stæðu yfir breytingar hjá Evrópusambandinu þegar svonefndur Lissabonsáttmáli væri að taka gildi. Hann hefði í för með sér að framkvæmdastjórnarmönnum yrði fækkað og Ísland fengi þá einn slíkan á 5-15 ára fresti ef að líkum lætur. 

 

Málin í Sjálfstæðisflokknum varðandi ESB eru nú að skýrasr: Þorgerður Katrin hneigist að ESB en Geir er á móti. Sennilega vill Þorgerður Katrín ganga í ESB en segir það ekki fullum fetum vegna Geirs.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Geir: Ég vil ekki ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skaz

Held að hún sé líka bara að höfða til þeirra innan flokksins sem vilja a.m.k. tala um þetta opinberleg utan reyklausu herbergjanna, verða að reykja vindlanna úti.

 Þetta gæti verið tilraun hennar til þess að undirbúa atlögu að formannssætinu. Að merkja sig sem formann sem er að minnsta kosti til í að leyfa umræðu og pælingar. Ekki ósjálfrátt "NEI!" sem tíðkast núna.

Skaz, 17.5.2008 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband