Fundarhöld um björgunaraðgerðir í fjármálum

Fundahöld hófust í rauðabýtið vegna aðgerða sem í undirbúningi eru til að leysa úr kreppunni á fjármálamarkaði og finna leiðir út úr efnahagsvandandum. Þannig komu fulltrúar Alþýðusmbands Íslands og Samtaka vinnumarkaðarins saman klukkan 8 í morgun í húsakynnum ASÍ. Gert er ráð fyrir fundum með ráðherrum síðar í dag.

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, sagði við Morgunblaðið í dag, segir að það komi til álita að skoða forsendur fyrir því að lífeyrissjóðirnir komi að lausn á efnahagsmálum með því að selja erlendar fjárfestingar og færa fjármunina til Íslands.

„Það er ákaflega mikilvægt að það sé liður í heildaraðgerð, sem hafi það umfang og trúverðugleika að hún sé líkleg til að leysa úr þeim vanda sem að okkur steðjar. Slík lausn er ekki orðin til þannig að ég get ekki sagt meira,“ sagði Gylfi í gærkvöldi.

Bæði hann og Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sögðu ljóst að yrði fallist á að færa hluta af erlendum eignum lífeyrissjóðanna yfir í íslenskar krónur, væri ljóst að engin áhætta yrði tekin með það fé. Hvorugur vildi tjá sig um hvort áhugi væri á því að aðildarumsókn að Evrópusambandinu yrði hluti af slíkri heildaraðgerð.

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði að verið væri að ræða ýmsar hugmyndir og það væri óeðlilegt að ræða um einstök efnisatriði fyrr en niðurstaða væri komin í málið. Allar skynsamlegar leiðir væru ræddar.  (mbl.is

Þessi mál voru rædd í þættinum Í vikulokin í morgun. Þar voru mættir Ögmundur Jónasson,Lúðvík Bergvinsson og Andrés Magnússon. Var mikill sáttatónn í máli þeirra allra og mikill vilji fyrir því að menn snéru bökum saman til þess að leysa  fjármálakreppuna.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is Mætt snemma til funda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband