Reyndu bankarnir að fella krónuna?

Pétur Blöndal  formaður viðskiptanefndar Alþingis líkir því við árás á fullveldi þjóðarinnar ef bankar og fjármálafyrirtæki hafi haft samantekin ráð um að taka stöðu gegn íslensku krónunni. Samningar um stöðutöku gegn íslensku krónunni nema allt að 720 milljörðum  króna en Morgunblaðið greinir frá því í dag að þetta hafi komið í ljós við skoðun á efnahagsreikningum bankanna. Pétur segir öllu máli skipta hvort þetta hafi verið samantekin ráð.  Auðvitað geti verið um eðlileg viðskipti að ræða eða framvirka gjaldeyrisamninga en þetta þurfi að skoða gaumgæfilega sem og allan grun um sviksamlegt athæfi.

Pétur segist telja ýmislegt bogið við regluverk Evrópusambandsins og eins reglur í alþjóðlegum viðskiptum með framvirka samninga. Það sýni sig í viðskiptum með olíu núna að það sé eitthvað mikið að þessu samningakerfi .  Hann segist enn telja að við getum notast við krónu. Þá sé ljóst að það þurfi að koma hlutunum í lag áður en hægt sé að skoða hvort það eigi að breyta um gjaldmiðil.  Hægt sé að spyrja sig á hvaða gengi eigi að taka upp evru eða að norska krónu?  Svörin við þessu hafi gríðarlega áhrif á skuldir og eignir einstaklinga.(mbl.is)

Það hefur mikið verið skeggrætt um það hvort bankarnir hafi vísvitandi reynt að fella íslensku krónuna.Það verður væntanlega kannað til fulls hvort svo hafi verið. Það  er eins og Pétur Blöndal segir atlaga að fullveldi þjóðarnnar,ef bankarnir hafa vísitandi verið að fella krónuna.

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Árás á fullveldi þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Menn ættu að rannsaka hvað tryggingafélögin voru að gera á gjaldeyrismarkaði, síðari hluta 2007 og allt þetta ár. Forstöðumenn tryggingafélaganna hreykja sér af að hafa komið öllum eignum þeirra úr landi.

Loftur Altice Þorsteinsson, 3.11.2008 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband