Neytendasstofa sektar mörg bakari vegna ófullnægjandi verðmerkinga

Neytendastofa gerði könnun á ástandi verðmerkinga í bakaríum dagana 19. – 24. júní sl. Í kjölfar könnunarinnar sendi Neytendastofa 13 bakaríum tilmæli þess efnis að koma verðmerkingum í viðunandi horf.

Dagana 1. og 5. ágúst sl. fylgdi Neytendastofa könnuninni eftir og leiddi sú könnun í ljós að níu af þeim 13 bakaríum sem send voru tilmæli stofnunarinnar höfðu ekki farið að þeim. Neytendastofa hefur því lagt stjórnvaldssektir á Gamla góða bakaríið Borgarholtsbraut, sem rekið er af Bettís ehf., Hjá Jóa Fel Smáralind, Hjá Jóa Fel Holtagörðum, Kornið Bíldshöfða, Kornið Borgartúni, Kornið Ögurhvarfi, Odd bakara Grensásvegi, Sveinsbakarí Engihjalla og Sveinsbakarí Arnarbakka. Í öllum bakaríunum voru vörur í kæli óverðmerktar og í tveimur bakaríum var verðmerkingum í borði mjög ábótavant.

Ég fagna því að Neytendastofa skuli hafa tekið verðmerkingar i bakaríum föstum tökum.En það er víðar,sem verðmerkingum er ábótavant. Er þess að vænta,að Neytendastofa geri  athugasemdir alls staðar sem þörf er á.

 

Björgvin Guðmundsson


Nýi meirihlutinn hræðist gerð fjárhagsáætlunar

Nýr meirihluti í Reykjavíkurborg fundar í dag og ræðir áfram um málefnasamning og skiptingu í nefndir og ráð. Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi borgarstjóri segir að vandasamt verk við gerð fjárhagsáætlunar bíði meirihlutans.

Hanna Birna og Óskar Bergsson, verðandi formaður borgarráðs, hittust um helgina til að ræða málefnasamning fjórða meirihlutans og hvernig raða skuli í ráð og nefndir borgarinnar. Hanna Birna segir engin ágreiningsefni hafa komið upp í viðræðunum. Hún vill ekkert upplýsa um efni málefnasamnings eða formennsku í nefndum og ráðum.

Í tíð fyrsta meirihlutans gegndi Óskar Bergsson formennsku í framkvæmdaráði. Þá höfðu Framsóknarmenn formennsku í borgarráði og íþrótta- og tómstundaráði. Flokkarnir tveir sömdu um að skipta á milli sín stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahöfnum. Það átti að koma í hlut Framsóknarmanna að fara með stjórnarformennsku í Orkuveitunni seinni tvö ár kjörtímabilsins.

Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, sagði í fjölmiðlum um helgina að fyrir lægju tillögur um flatan niðurskurð á launaútgjöldum á velferðarsviði. Hanna Birna kannast ekki við það. Hún segir að nýja meirihlutans bíði vandasamt verk við gerð fjárhagsáætlunar. Bregðast þurfi við erfiðu ástandi í efnahagsmálum. (ruv.is)

Ekki er reiknað með neinum ágreiningi við skipan í nefndir og enn síður um málefni. Stuðst verður við gamla málefnasamninginn og  reynt verður einnig að hafa nefndaskipan svipaða og áður.'Með því að ákvörðun var  tekin um samstarfið hjá æðstu mönnum flokkanna  er ekki um það að ræða að skapa neinn ágreining um nefndir eða annað slíkt.Fyrirskipun er um að berja þetta saman og það verður gert.

 

Björgvin Guðmundsson

.


Dreift kjaftasögum um Ólaf borgarstjóra!

Í kastljósþætti í síðustu viku vék Helgi Seljan að því,að sögur hefðu gengið það,að Ólafur borgarstjóri hefði verið mikið á börum borgarinnar undanfarið og gaf Helgi í skyn,að  hegðan Ólafs hefði ekki verið í lagi þar. Ólafur borgarstjóri sagði, að það væri rétt,að hann hefði farið á bari en hann hefði ekki neytt víns þar, farið á eigin bíl og verið  ódrukkinn. En hann kvaðst hafa heyrt um þessar sögur og að enhverjir hefði dreift þeim,ef til viill pólitískir andstæðingar. Hanna Birna  vék einnig að þessu og viðurkenndi að hafa tekið þetta mál upp á viðræðufundi þeirra  Ólafs.

Samkvæmt þessu er nú farið að ræða einkamál stjórnmálamanna á viðræðurfundum íhalds og samstarfsflokka þess. Það verður sjálfsagt tekið upp hvort Óskar Bergsson stundi barina í Reykjavík og ákveðið hvaða bari hann megi sækja og hvað mikið hann megi drekka. Þetta  er að vísu nýtt en íhaldinu er ekkert óviðkomandi.

 

Björgvin Guðmundsson


Gliðnun milli launa og lífeyris aldraðra eykst

Ólafur Ólafsson,fyrrverandi landlæknir, barðist ötullega  gegn gliðnun milli launa og lífeyris aldraðra á meðan hann var formaður FEB í Rvk. og LEB.Hann benti á að mikil gliðnun hefði átt  sér stað  á  12 ára stjórnartíma Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Samfylkingin lofaði að draga úr gliðnuninni,þegar hún barðist til  valda fyrir síðustu kosningar.Það eru því mikil vonbrigði,að gliðnun skuli enn hafa aukist á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar. Árið 2007 var lífeyrir aldraðra  100% af lágmarkslaunum en í ár er lífeyrir aldraðra 93,74% af lágmarkslaunum! Hvað er hér að gerast. Jú gliðnunin er að aukast þrátt fyrir kosningaloforðin.Í þessu efni  miðar okkur aftur á bak en ekki áfram.

 

Björgvin Guðmundsson


Marsibil styður ekki meirihlutann í borgarstjórn

Marsibil Sæmundardóttir, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hittir stuðningsmenn sína núna fyrir hádegi til að vega og meta stöðu sína í borginni. Hún hefur gefið það út að hún styðji ekki nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Marsibil segir nokkra kosti í stöðunni. Hún geti verið áfram í flokknum en starfað í minnihluta, hún geti starfað sem óháður borgarfulltrúi, skipt um flokk eða hætt.

Marsibil segir að ákveði hún að starfa áfram vilji hún vinna með minnihlutanum en að hún myndi þó ekki sprengja meirihlutann gæfist henni kostur á því. Marsibil segist ætla að gefa út yfirlýsingu þegar hún hefur tekið ákvörðun, en býst ekki við að það verði í dag.

Svo virðist sem Óskar Bergsson hafi fáa með sér af framboðslistanum til þess að styðja meirihlutann með íhaldinu. Marsibil styður hann ekki. Sá,sem skipaði næsta sæti fyrir neðan er hættur.Björn Ingi var áður  hættur,svo og  Anna Kirstinsdóttir.Óskar hefur sjálfur sagt,að hann verði að fara út fyrir flokkinn til þess að fá fólk í nefndir. Það er óskiljanlegt hvers vegna Óskar ákvað að ganga til samstarfs við íhaldið. Hann var búinn að gangrýna það harðlega. Var það  Guðni Ágústsson sem skipaði honum það?

Björgvin Guðmundsson

 


Rússar geta ekki stjórnað Georgíu

Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, staðfesti í dag að Rússar munu byrja að flytja her sinn frá Georgíu á morgun.  Í yfirlýsingu frá rússneskum stjórnvöldum kemur fram að Medvedev hafi fullyrt þetta í símafundi með Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseta.

Sarkozy varaði Medvedev við því að standi Rússar ekki við skuldbindingar vopnahléssamningsins, myndi það hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar og skaða samskipti Rússa og Evrópusambandsins.

Medvedev skrifaði undir sáttamála um að binda endir á átök í Georgíu í gær, degi eftir Mikheil Saakashvili, forseta Georgíu.(mbl.is)

Rúrssar hafa gengið mjög harkalega fram í Georgíu.Hafa þeir lagt fjölda húsa í rúst og drepið saklausa borgara. Er furðulegt,að þetta skuli hafa getað átt sér stað milli fyrrum vinaríkja innan Sovetríkjanna.Rússum hefur gramist það mjög,að Georgía væri að nálgast vestræn ríki meira og meira og hygði jafnvel á aðild að NATO. En Georgía er sjálfstætt ríki og Rússar geta ekki stjórnað því.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Rússar hefja brottför hersins á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

44% vilja Dag sem borgarstjóra,33% vilja Hönnu Birnu

Um það bil 33 prósent borgarbúa vilja að Hanna Birna Krtistjánsdóttir verði borgarstjóri en tæp 44 prósent vilja að Dagur B. Eggertsson verði það, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.

Dagur hefur því yfirburði fram yfir Hönnu Birnu að því er fylgi varðar sem borgarstjóri. Hanna Birna fær að vísu meira fylgi samkv. skoðanakönnun Fréttsblaðsins en Sjálfstæðisflokkurinn. En Hanna Birna er ekki vinsæl meðal borgarbúa  þó hún kunni að vera vinsæll innan Sjálfstæðisflokksins,

 

Björgvin Guðmundsson


Átti Ólafur borgarstjóri að vera strengjabrúða í höndum íhaldsins?

Í kastljósþætti RÚV,þar sem rætt var við Ólaf borgarstjóra og Hönnu Birnu  oddvita íhaldsins kom margt athyglisvert fram. Hanna Birna sagðist hafa komið á daglegum fundum með Ólafi til þess að ræða málin. Ljóst var,að þar ætlaði hún að leggja honum lífsreglurnar reglulega og segja hvað hann mætti gera og hvað ekki. Það gekk svo langt,að Hanna Birna vildi ráða því hvaða aðstoðarmann Ólafur réði sér sem borgarstjóri.Ólafur ætlaði að ráða Gunnar Smára Egilsson sem aðstoðarmann en Hann Birna bannaði það.Næst gerðist það,að Hanna Birna lagði til að þau Ólafur og hún hefðu sameiginlegan aðastoðarmann!  Það er svipað og Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún hefðu sameiginlegan aðstoðarmann! Ólafur borgarstjóri tók tillit til sjónarmiða Hönnu Birnu og hætti við að ráða Gunnar Smára sem aðstoðarmann en ákvað að ráða hann sem einhvers konar upplýsingafulltrúa með aðsetri í ráðhúsinu. Þá sagði Hanna Birna,að Gunnar Smári mætti ekki hafa skrifstofu í ráðhúsinu!Ólafur hefur greinilega átt að vera strengjabrúða í höndum íhaldsins. Hanna Birna nefndi ekkert eitt mál í kastljósi,sem valdið hefði miklum ágreiningi milli hennar og Ólafs. Hún sagði einfaldlega að samstarfið hefði ekki gengið upp. Ólafur reyndi að teygja sig til samkomulags við íhaldið og bauðst til þess að hætta sem borgarstjóri um áramót í stað þess að hætta í mars.En það dugði íhaldinu ekki. Í stað þess að ná samkomulagi um breytingar á samstarfinu vildi íhaldið frekar slíta samkomulaginu einhliða og svíkja undirritaðan samning við Ólaf og  drengskaparloforð,sem Vilhjálmur og Kjartan Magnússon gáfu Ólafi um að  samkomulagið yrði ekki rofið áður en kjörtímabilið væri  á enda. Ólafur segir,að slæmar skoðanakannaniur fyrir íhaldið hafi ráðið því að það ákvað að slíta meirihlutasamstarfinu.íhaldið taldi,að með því að slíta samstarfi við Ólaf og taka upp samstarf við Óskar Bergsson mundi fylgið aukast. En ný skoðanakönnun Fréttablaðsins bendir ekki til þess að svo sé.

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 18. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband