Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Nógir peningar til hjá ríkissjóði
Á síðasta ári varð 89 milljarða króna afangur af rekstri ríkissjóðs en síðustu þrjú ár hefur ríkissjóður skilað samanlagt 283 milljarða króna afgangi. Í lok síðasta árs var ríkissjóður í fyrsta skipti með jákvætt eigið fé upp á tíu milljarða króna. Til samanburðar var eigið fé ríkissjóðs neikvætt um nærri 200 milljarða í árslok 2000 á verðlagi þess tíma.
Þessar tölur leiða í ljós,að það eru nógir peningar til í ríkissjóði og því unnt að bæta kjör eldri borgara og aldraðra verulega eins og lofað var í síðustu kosningum.89 milljarðar voru afgangs af rekstri ríkissjóðs sl. ár og svipaður afgangur var til jafnaðar á ári hvert ár sl. 3 ár.
Björgvin Guðmundsson
Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Ólafur F. gengur í Frjálslynda flokkinn
Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, ætlar að ganga aftur til liðs við Frjálslynda flokkinn. Þetta kom fram á blaðamannafundi með Ólafi í ráðhúsi Reykjavíkur. Ólafur lætur af embætti borgarstjóra á fimmtudag þegar nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tekur við völdum.
Að sögn Ólafs er það vilji meirihluta borgarbúa að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni og það sé hans vilji og Frjálslynda flokksins að tryggja að svo verði.
Ólafur segir að miðað við fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar blasi við að draga verði úr stórum framkvæmdum um fjóra til fimm milljarða frá því sem áður hafði verið áætlað og að síðasta þriggja ára fjárhagsáætlun borgarinnar standist ekki. Skera þurfi niður launakostnað hjá borginni, draga úr yfirvinnu um þriðjung og heildarlaunakostnað um 8%.(mbl.is)
Ólafur F. gékk í Íslandshreyfingu Ómars Ragnarssonar fyrir síðustu kosningar. Hann segir nú skilið við hana og gengur í frjálslynda flokkinn.Þetta er dæmigert flokkaflakk.Ekki þarf að reikna með því að fylgi Ólafs aukist við það að hann gangi í frjálslynda flokkinn. Reykvíkingar eru ekki búnir að gleyma því að hann sveik félaga sína í Samfylkingu,VG og framsókn,þegar hann gekk yfir til íhaldsins út á borgarstjórastólinn.Síðan sveik íhaldið hann nú og skipti honum út fyrir framsókn.Það breytir engu hvort Ólafur er á vegum frjálskyndra eða Íslandshreyfingarinnar.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ólafur F. til liðs við Frjálslynda flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Óskar ræður sér ekki fyrir kæti
Marsibil,varaborgarfulltrúi Óskar Bergssonar,sagði sig úr Framsókn í gær. Menn hefðu haldið ,að Óskar Bergsson yrði hnugginn við þessi tíðindi.En það er nú öðru nær. Hann ræður sér ekki fyrir kæti.Þegar hann er spurður um úrsögnina segir hann,að það sé mikil ánægja með samstarfið við íhaldið. Hann finni fyrir miklum stuðningi í framsókn.Og svo bætir hann við: Átökunum er lokið. Það er engu líkara en,að Marsibil hafi verið einhver friðarspillir.
Óskar er svo glaður yfir,að vera kominn í faðm íhaldsins,að hann veit ekki hvernig hann á að láta. Hann fær að vera fundarstjóri borgarráðs,fær að raða málum á dagskrá en hann mun engu ráða. Íhaldið ræður öllu með sína 7 borgarfulltrúa og borgarstjórann. En hverju breytir það ef Framsókn fær að vera með íhaldinu.Þetta er bara eins og í gamla daga í ríkisstjórn.
Björgvin Guðmundsson
Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Kaupmáttur lífeyris aldraðra dróst aftur úr í kaupmáttarþróuninni
Stefán Ólafsson prófessor er nú formaður tryggingaráðs ( stjórnar TR).Ég bind miklar vonir við formennsku hans þar og vona,að hann geti komið fram lagfæringu á lífeyri bótaþega,sem dregist hefur mikið aftur úr. Þó geri ég mér ljóst,að ráðherra er yfir honum. Stefán hefur á undanförnum árum skrifað margar greinar um kjaramál aldraðra og öryrkja og lagt áherslu á nauðsyn þess að bæta kjör þeirra.Í einni greininni,sem Stefán skrifaði sagði hann m.a.:
Kaupmáttur hámarkslífeyris til einhleypra eldri borgara dróst stórlega aftur úr almennu kaupmáttarþróuninni í samfélaginu í góðærinu eftir 1995.Frá 1990 til 2005 jókst kaupmáttur þjóðarinnar um 50,6% á meðan kaupmáttur hámarkslífeyris frá Tryggingastofnun jókst um 18%. Það endurspeglar kjaraþróun þeirra lífeyrisþega sem lítið annað hafa en almannatryggingar til að stóla á. Þeir sem fá að auki lágar eða hóflegar greiðslur úr lífeyrissjóðum hafa einnig setið eftir, en það er stór hluti eldri borgara og öryrkja.
Megin ástæða þessarar óhagstæðu þróunar fyrir lífeyrisþega er hin aukna skattbyrði sem lagðist á lágtekjuhópana í samfélaginu. Stjórnvöld eiga þannig stærsta sök á því að kjör lífeyrisþega hafa dregist afturúr í góðærinu frá 1995.
Þessi orð Stefán eru að mestu í fullu gildi enn.Að vísu bötnuðu kjör lífeyrisþega nokkuð með samkomulagi LEB og fyrri ríkisstjórnar 2006. En síðan hafa þau versnað aftur á yfirstandandi ári eins og ég hefi margoft bent á og nú er lífeyrir aldraðra aðeins 93.74% af lágmarkslaunum ( 100% sl. ár) Ég vænti þess því,að Stefán hafi gliðnunina í huga þegar hann fjallar um kjarabætur til handa öldruðum og öryrkjum.
Björgvin Guðmundsson
Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Þorbjörg Helga ætlaði að reka sviðsstjórann!
Ég bjargaði því að frábær embættismaður borgarinnar yrði látinn fara fyrir það eitt að vera samviskusamur og reyna að leiðbeina ungum og óreyndum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, segir Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir efndi sem formaður leikskólaráðs til mjög dýrrar auglýsingaherferðar út af Borgarbörnum. Hún hafði ekkert samráð við mig eða æðstu stjórn borgarinnar um það og lítið samráð við sviðsstjórann, Ragnhildi Bjarnadóttur. Þegar sviðsstjórinn gerði athugasemdir vildi Þorbjörg Helga láta reka sviðsstjórann sem átti allt annað skilið enda einn af traustustu og bestu starfsmönnum borgarinnar segir Ólafur F.(mbl.is)
Þessi saga,sem Ólafur fráfarandi borgarstjóri segir af viðskiptum Þorbjargar Helgu formanns leikskólaráðs og Ragnhildar Bjarnadóttur sviðsstjóra ráðsins leiðir í ljós,að nefndarformaðurinn hefur misskilið hlutverk sitt. Það er ekki hlutverk formanna nefnda og ráða hjá borginni að ráða eða reka embættismenn. Það verkefni er í höndum borgarráðs og borgarstjóra.Það er heldur ekki hlutverk formanna nefnda og ráða að taka ákvarðanir um mikil fjárútlát borgarinnar. Það vald liggur hjá borgarráði og borgarstjórn.Svo virðist sem sumir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hafi ofmetnast við að veljast til formennsku í ráðum og að þeir hafi tekið sér meira vald en þeir höfðu. Það sama má segja um nýjan oddvita Sjálfstæðisflokksinss.Hann hefur einnig ofmetnast og ætlaði að stýra Ólafi borgarstjóra alveg eins og strengjabrúðu. Fróðlegt verður að sjá hvernig henni gengur að stýra Óskari Bergssyni.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Ólafur F. Magnússon: Stöðvaði brottrekstur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Verður Gylfi næsti forseti ASÍ
Gylfi Arnbjörnsson framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands vill ekki láta uppi hvort hann gefi kost á sér sem forseti sambandsins komandi ársfundi þess í lok október næstkomandi. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaforseti ASÍ sagðist fyrr í sumar vera að hugsa málið en ekki náðist í hana nú.
Grétar Þorsteinsson forseti Alþýðusambands Íslands tilkynnti í júní að gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Hann var fyrst kjörinn forseti á 38. þingi ASÍ árið 1996, endurkjörinn á þinginu 2000 og á ársfundi 2002, 2004 og 2006. (mbl.is)
Gylfi yrði ágætur forseti Alþýðusambandsins. Hann er skeleggur og vel að sér.Nú er þörf á góðum forseta ASÍ,þar eð erfiðir tímar eru framundan og nauðsynlegt,að verkalýðshreyfingin veiti örugga og trausta forustu í baráttunni fyrir bættum kjörum verkafólks.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Forsetakjör hjá ASÍ: Ekkert framboð komið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |