Jóhanna opnar nýjan þjónustuvef TR

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, opnaði í dag formlega nýjan þjónustuvef Tryggingastofnunar en þar verður til að byrja með haldið utan um greiðsluyfirlit og tekjuáætlanir og bráðabirgðaútreikningar og einnig verður hægt að fá bráðabirgðaútreikning á netinu.

Jóhanna sagði að um væri að ræða gífurlega framför fyrir viðskiptavini, ekki síst að geta fengið tafarlausan bráðabirgðaútreikning á greiðslum stofnunarinnar til sín og áttað sig þannig á stöðu sinni hverju sinni. Með þessari þjónustu sigldi Tryggingastofnun ríkisins nú hraðbyrði inn í upplýsingaöldina, stórbætti og efldi þjónustu við viðskiptavini sína og gerði hana aðgengilegri.(mbl.is)´

Það er gott  að Tryggingastofnun skuli tileinka sér nýjustu tölvutækni og veita viðskiptavinum aukna þjónustu.Vonandi hækka bætur í kjölfarið.

 

Björgvin Guðmundsson

 


 


mbl.is Nýr þjónustuvefur Tryggingastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ramses kominn til Íslands

Paul Ramses kyssti íslenska jörð þegar hann hafði sameinast fjölskyldu sinni að nýju í nótt. Hann segist þakklátur guði og öllum sem lögðu honum lið. Málið sé sigur fyrir íslenskt réttarkerfi. Miklar tilfinningar brutust út við endurfundina og viðstaddir klöppuðu fyrir fjölskyldunni. 

Paul Ramses segir dvölina á Ítalíu hafa verið sér erfiða, bæði samskipti við lögregliiiog aðra í flóttamannabúðunum. Þá hafi litlu mátt muna að hann missti vonina fyrst í stað enda hefði hann skilið við son sinn nánast nýfæddan og konu sem enn var að jafna sig eftir barnsburð.(mbl.is

Það er gleðiefni,að Ramses skuli komin til Íslands á ný og að mál hans skuli tekið til efnislegrar meðferðar hér á landi. Hann fær nú að  dveljast hjá fjölskyldiu sinni meðan hann bíður.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 


mbl.is Grátið af gleði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er komið nóg af álverksmiðjum?

Ég styð það að reist verði álverksmiðja í Helguvík.Undirbúningur er langt kominn og framkvæmdir raunar hafnar. Næg orka hefur verið tryggð. Það  er því erfitt eða ókleift að stöðva framkvæmdir. Auk þess  hafa Suðurnesjamenn  og Reyknesingar orðið fyrir búsifjum,misst stóran vinnnustað,sem er varnarliðið á Keflavíkurflugvelli en áður var búið að selja nær alla þorskkvóta burt úr byggðarlögunum. Hins vegar er meiri spurning með  álver við Bakka.Þar er undirbúningur mikið skemmra á veg kominn.Við skulum byrja á því að bíða eftir hinu samaeiginlega umhverfismati og sjá svo til. Ef unnt er að draga framkvæmdir þar nægilega lengi þannig að þær ógni ekki stöðugleika í íslensku efnahagslífi og  útblástur úr verksmiðjunni verði innan marka þá kemur álverksmiðja þar til greina.

 

Björgvin Guðmundsson


Íslenskir friðargæsluliðar eiga ekki að bera vopn framvegis

Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að endurskilgreina verkefni íslenskra friðargæsluliða erlendis. Þeir munu framvegis sinna borgaralegum verkefnum og áhersla lögð á að þeir beri ekki vopn. Hætt verður að manna sjö stöður í Afganistan þar sem friðargæsluliðar bera skotvopn. Íslenska ríkið mun ekki greiða bætur vegna árásarinnar.

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra boðaði til í dag til að kynna kynna álitsgerð um árás á íslenska friðargæsluliða í Kabúl í október 2004. Þrír létust í árásinni, ódæðismaðurinn, 11 ára afgönsk stúlka og bandarísk kona. Skýrsluna unnu tveir fyrrverandi hæstaréttardómarar, Guðrún Erlendsdóttir og Haraldur Henrysson.

Ingibjörg segir nauðsynlegt að skilgreina betur borgaraleg verkefni friðargæslunnar og að íslenskir friðargæsluliðar eigi að taka að sér borgaraleg verkefni. Nema um sé að ræða sérþjálfaða aðila, s.s. íslenska sérsveitarmenn og starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem eru þjálfaðir til að bera vopn.

Ingibjörg segir að tilgangur skýrslunnar hafi ekki verið að finna sökudólga. Það hafi verið mikilvægt að ljúka málinu með formlegum hætti af hálfu ráðuneytisins.

Hún segir að ekkert hafi bent til annars en að öryggisgæsla í ferðinni hafi verið óaðfinnaleg. Friðargæsluliðar brugðust rétt við í kjölfar árásinnar, segir Ingibjörg.

Þá kemur fram að ekki hafi legið fyrir ákveðnar reglur varðandi ferðir friðargæsluliða frá flugvellinum.

Þá kemur jafnframt fram að yfirmaður öryggismála á vettvangi hafi talið ferð friðargæsluliðanna óráðlega. (mbl.is)

Ég fagna þessari ákvörðun utanríkisráðherra,að íslenskir friðargæsluliðar eigi ekki að bera vopn framvegis. Það eru næg verkefni,sem friðargærsluliðarnir geta sinnt þó ekki .þurfi vopn við þau störf.

 

Björgvin Guðmundsson

PDF-skrá 

mbl.is Friðargæsluliðar beri ekki vopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handboltastrákarnir fá 50 milljónir

Ríkisstjórnin ákvað á fundi í dag, að styrkja Handknattleikssamband Íslands um 50 milljónir króna. Var þetta gert að tillögu menntamálaráðherra vegna frækilegs árangurs íslenska landsliðsins í handbolta og einstæðs afreks á
ólympíuleikunum í Peking, að því er kemur fram í tilkynningu.

Íslenska handboltalandsliðið vann silfurverðlaun á ólympíuleikunum og lék um gullverðlaun við Frakka en tapaði þeim leik. 

Ólympíufararnir koma heim á morgun og býður ríkisstjórnin, Reykjavíkurborg og Íþrótta- og ólympíusamband Íslands til fagnaðarfundar íslensku þjóðarinnar. Ákveðin hefur verið ný akstursleið frá Skólavörðuholti en þaðan mun handboltalandsliðið leggja af stað í opnum vagni kl. 18 í fylgd lúðrasveitar, fánabera ungs íþróttafólks og lögreglu.

Ekið verður niður Skólavörðustíg og Bankastræti að Arnarhóli. Þar verður haldinn fagnaðarfundur ólympíufaranna og íslensku þjóðarinnar sem er hvött til að fjölmenna og sýna íþróttafólkinu þakklæti sitt fyrir glæsilega frammistöðu á ólympíuleikunum í Peking.(mbl.is)

Ég tel það vel ráðið hjá ríkisstjórninni að styrkja HSÍ með myndarlegu fjárframlagi. Þetta er viðurkenning á góðri frammistöðu strákanna okkar og þeir eiga hana skilið.Væntanlega verður þeim vel fagnað á morgun þegar þeir koma til landsins.

 

Björgvin Guðmundsson

Fara til baka 


mbl.is HSÍ fær 50 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðrétting á lífeyri aldraðra ekki byrjuð

Nú hefur stjórnarsamvinna Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks staðið í   15 mánuði .Hverju hefur Samfylkingin komið fram? Það er  ekki mikið.Sumir ráðherrar flokksins eru að vísu ansi röskir og hafa afgreitt mál vel.Ég er  t.d. ánægður með orkulög Össurar..En lítið fer fyrir stórum stefnumálum jafnaðarmanna.Lítum á velferðarmálin. Dregið hefur verið úr tekjutengingum  vegna lífeyris aldraðra og öryrkja.Og skerðing tryggingabóta vegna tekna maka hefur verið afnumin.En leiðrétting á lífeyri aldraðra og öryrkja hefur ekki hafist.Í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks dróst lífeyrir aldraðra mikið aftur úr launum annarra þjóðfélagshóp.Samfylkingin boðaði í  kosningunum,að hún ætlaði að leiðrétta þetta.Sú leiðrétting hefur ekki byrjað þó flokkurinn hafi setið þennan tíma í ríkisstjórn.Ekki næst heldur að byggja  öll þau hjúkrunarheimili á tilsettum tíma,sem gefið var fyrirheit um.Áætlun um 400 rými hefur  þó verið samþykkt.Það hefurr verið unnið ágætt starf í öðrum velferðarmalim svo sem í þágu barna og ungmenna, í þágu geðfatlaðra. og fatlaðra.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net

"Mikill munur á ríkisstjórnum"

Ingibjörg Sólrún Gísladóttoir,formaður Samfylkingarinnar,var gestur Helga Seljan í kastljósi í gærkveldi.Rætt var um utanríkismál,efnahagsmál,stóriðjumál,lífeyrismál æðstu embættismanna og þingmanna og velferðarmál.Helgi spurði hvort nokkur munur væri á  Samfylkingunni  og Framsókn í ríkisstjórn,hvort nokkuð hefði breytst í grundvallaratriðum.Ingibjörg Sólrún sagði,að það væri mikill munur.Mjög margt hefði breytst t.d. í velferðarmálum. Samþykkt hefði verið aðgerðaráætlun fyrir langveik börn,gert átak í lífeyrismálum almannatrygginga,þar hefði verið bætt verulega í,samþykkt áætlun um byggingu 400 nýrra hjúkrunarrýma fyrir aldraða o.s.frv.

Það er að sjálfsögðu rétt það,sem Ingibjörg Sólrún nefndi í velferðarmálum.Það hafa t.d. verið látnir auknir fjármunir í lifeyri aldraðra og öryrkja en það hafa fyrst og fremst verið látnir fjármunir til þess að draga úr tekjutengingum,til þess að bæta kjör þeirra lífeyrisþega,sem eru á vinnumarkaðnum.  og afnema skerðingu vegna tekna maka.En það hefur lítið sem ekkert verið gert fyrir þá lífeyrisþega,sem hættir eru að vinna. Þeir hafa verið látnir sitja á hakanum. En það hefði átt að byrja á því að bæta kjör þeirra eða a.m.k að gera það samhliða.

 

Björgvin Guðmundsson

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 26. ágúst 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband