Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Samkomulag ríkis og borgar um lausn á húsnæðisvanda geðfatlaðra
Reykjavíkurborg tekur að sér framkvæmd allrar þjónustu við geðfatlaða í byrjun næsta árs. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag. Við sama tilefni var skrifað undir þjónustusamning um að borgin sinni leysi húsnæðisvanda 44 geðfatlaðra einstaklinga.
Reykjavíkurborg tekur að sér framkvæmd allrar þjónustu við geðfatlaða í byrjun næsta árs. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag. Við sama tilefni var skrifað undir þjónustusamning um að borgin sinni leysi húsnæðisvanda 44 geðfatlaðra einstaklinga.
Þetta er viðamesta verkefni sem ríkið flytur yfir til sveitarfélaga á sviði þjónustu við geðfatlaða, sagði Jóhanna í ávarpi sínu og lýsti yfir mikilli ánægju með samkomulagið við borgina. Hún sagði afar miklu máli skipta að þjónustan verði á einni hendi.
Reykjavíkurborg tekur yfir m.a. verkefni Straumhvarfa, sem er átaksverkefni á vegum ríkisins, um uppbyggingu þjónustu og húsnæðis í borginni. Framkvæmdum í Reykjavík verður flýtt og lýkur þegar á næsta ári, í stað ársins 2010. Með því leysist vandi 44 geðfatlaðra einstaklinga sem hingað til hafa búið á stofnunum eða hjá aðstandendum, sagði Jóhanna.
Þjónustusamningurinn er fyrsta skrefið í að færa alla ábyrgð á þjónustu við geðfatlaða frá ríki til borgarinnar. Jóhanna sagði að því fælust tímamót þar sem undirstrikaður vilji og áform ríkisstjórnarinnar um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga.
Samningurinn gildir til ársins 2010 og verður gerð úttekt á framkvæmdinni fyrir þann tíma. Niðurstöðurnar verða lagðar til grundvallar í viðræðum um framhald samningsins. Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun á samningstímanum verja 850 milljónum króna í stofnkostnað og rekstur þeirra verkefna sem borgin mun sinna. (mbl.is)
Þetta eru ánægjulegar fréttir. Geðsjúkdómar eru mjög erfiðir sjúkdómar og nógu efitt að glíma við þá sjúkdóma þó húsnæðisvandi bætist ekki við. Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið mjög ötul við að reyna að leysa vanda geðfatlaðra.Samkomulagið við borgina er góður áfangi á þeirri braut að leysa þau vandamál.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Húsnæðisvandi 44 geðfatlaðra einstaklinga leysist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Eru olíufélögin að misfara með frelsið?
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur óskað eftir upplýsingum um þróun verðlags á olíumarkaði frá Samkeppniseftirlitinu og Neytendastofu. Segist ráðuneytið hafa fengið ábendingar að undanförnu vegna þróunar á eldsneytisverði.(mbl.is)
Það er fagnaðarefni að viðskiptaráðherra skuli taka fyrir verðlagningu olíufélaganna á eldsneyti.Umboðsmaður neytenda tilkynnti einnig nýlega að hann mundi kalla á fulltrúa olíufélaganna til þess að ræða það sama.Mín skoðun er sú,að olíufélögin hafi farið mjög frjálslega með álagningarfrelsið á olíuvörum að undanförnu.Það hefur verið hækkað ótæpilega,þegar verð hefur hækkað erlendis og gengið fallið en ekki lækkað eins rösklega að sama skapi þegar verð hefur lækkað erlendis eða krónan hækkað.Þá liggur .það fyrir, að álagning olíufélaganna hefur hækkað mjög mikið.Auk þess breyta olíufélögin alltaf verðinu í takt eins og um samráð sé að ræða .
Ef oliufélögon verða uppvís að því að misnota álagningarfrelsið og ef samkeppni er ekki næg milli þeirra á að svipta þau álagningarfrelsinu.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Sigurbjörn Einarsson látinn
Sigurbjörn Einarsson, biskup, lést á Landspítalanum í morgun, 97 ára að aldri. Sigurbjörn var vígður sem biskup yfir Íslandi árið 1959, þá 47 ára að aldri og gegndi embættinu til ársins 1981.
Dr. Sigurbjörn Einarsson fæddist 30. júní 1911 á Efri Steinsmýri í Meðallandi, Vestur Skaftafellssýslu. Foreldrar hans voru Magnús Kristinn Einar Sigurfinnsson, bóndi á Efri Steinsmýri í Meðallandi, og Gíslrún Sigurbergsdóttir, húsfreyja.
Sigurbjörn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1931 og nam almenn trúarbragðavísindi, klassísk fornfræði og sögu við Uppsalaháskóla. Hann lauk þaðan prófi í grísku, fornfræðum og sögu árið 1936 og hlaut cand. fil. gráðu frá heimspekideild Stokkhólmsháskóla árið 1937. Kandídatsprófi í guðfræði lauk hann frá Háskóla Íslands árið eftir. Sigurbjörn stundaði framhaldsnám í nýja-testamentisfræðum við Uppsalaháskóla 1939, í trúfræði við Háskólann í Cambridge sumarið 1945 og framhaldsnám veturinn 1947-48, meðal annars í Basel.
Séra Sigurbjörn Einarsson var settur sóknarprestur í Breiðbólstaðarprestakalli á Skógarströnd frá 1. sept. 1939 og vígður í september sama ár. Honum var veitt Hallgrímsprestakall í janúar 1941 og þjónaði þar til 1944 þegar hann var skipaður dósent í guðfræði við Háskóla Íslands þar sem hann hafði verið settur kennari. Hann var skipaður prófessor í guðfræði 1949 og gegndi því starfi til 1959 er hann var vígður biskup Íslands. Hann þjónaði sem biskup Íslands til ársins 1981.
Er Sigurbjörn lét af embætti biskups Íslands sinnti hann margvíslegum verkefnum, kennslu og ritstörfum. Hann var meðal annars leiðbeinandi á kyrrðardögum í Skálholti frá upphafi þeirra og síðast nú í janúar 2008. Sigurbjörn Einarsson var einn afkastamesti predikari sinnar samtíðar og sinnti þeirri köllun sinni til hinstu stundar.
Sigurbjörn Einarsson gegndi fjölmörgum félags-og trúnaðarstörfum. Hann var meðal annars formaður bókagerðarinnar Lilju frá stofnun 1943 og til 1959, formaður Þjóðvarnarfélags Íslendinga 1946 50, formaður Skálholtsfélagins frá stofnun þess 1949. Hann sat í stjórn Hins íslenska Biblíufélags frá 1948 og var forseti þess 1959 81, forseti Kirkjuráðs og Kirkjuþings 1959-81 og sat í stjórn Nordiska Ekumeniska Institutet 1959 81. Sigurbjörn var formaður sálmabókarnefndar 1962-72, formaður þýðingarnefndar Nýja testamentisins 1962-81 og sat í nefnd á vegum Lúterska heimssambandsins um trúariðkun og trúarlíf 1964-68. Hann var formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju 1982-87 og Skólanefndar Skálholtsskóla 1972-81.
Sigurbjörn Einarsson var kjörinn heiðursdoktor í guðfræði við Háskóla Íslands 1961 og Háskólann í Winnipeg 1975. Hann var heiðursfélagi Prestafélags Íslands 1978, Félags íslenskra rithöfunda 1981, Hins íslenska Biblíufélags 1982 og Prestafélags Suðurlands 1987.(mbl.is)
Sigurbjörn Einarsson var merkur maður. Hann var mikill kennimaður,góður predikari og skrifaði og talaði mjög gott mál.Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir á þjóðfélagsmálum,var andvígur hersetu í landinu og var einlægur jafnaðarmaður. Hann var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn.Eftir að hann var kjörinn biskup hætti hann afskiptum af stjórnmálum.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Það er naumt skammtað til eldri borgara
Á heimasíðu Tryggingastofnunar má sjá hvað ellilífeyrisþegar fá í lífeyri frá TR. Einhleypur eldri borgari sem ekkert hefur í atvinnutekjur og ekki er í lífeyrissjóði fær 123.516 kr.á mánuði fyrir skatt og 113,430 kr. eftir skatt.Með þessari upphæð á hann að greiða húsaleigu eða húsnæðiskostnað,mat,föt,síma,skatta,rekstur bíls ef um hann er að ræða og allan annan kostnað.Til viðbótar þessu fær hann nú rúmar 8 þús. kr. á mánuði vegna örlætis ríkisstjórnarinnar að greiða þeim,sem ekkert fá úr lífeyrissjóði uppbót á ellilífeyri.Þessi eldri borgari fær því samanlagt um 121 þús kr. á mánuði.Húsaleiga í dag fyrir 2 ja herb íbúð er 100-120 þús. á mánuði.Örlitlar húsaleigubætur fást upp í hana en allir sjá,að það lifir enginn mannsæmandi lífi af þessum upphæðum.Það er ekki unnt að veita sér neitt af þessum peningum. Þetta er aðeins fyrir brýnustu nauðþurftum. Þannig fer eitt ríkasta land í heimi með eldri borgara sína.En á sama tíma getur ráðherra eytt 5 milj. kr. í að skreppa á olympíuleikana.
Sá eldri borgari,sem hefur 50 þús. úr lífeyrissjóði á mánuði er lítið betur settur en framangreindur einstaklingur.Í raun heldur þessi eldri borgari ekki nema helmingi af þessum lífeyrissjóðstekjum,þar eð lífeyrir frá TR er skertur um 25 þús. kr. vegna þessara tekna úr lífeyrissjóði.Þá er eftir að reikna skatt,sem verður að greiða af þessum lífeyrissjóðstekjum.Sá einhleypur eldri borgari,sem hefur 50 þús. á mánuði úr lífeyrissjóði fær 111 þús. á mánuði frá TR fyrir skatt og 105 þús. á mánuði eftir skatt. Síðan bætast tekjurnar úr lífeyrissjóðnum við. Það er naumt skammtað til eldri borgara. Og umbætur láta á sér standa. Umbætur koma aðeins til þeirra sem eru á vinnumarkaði en ekki til hinna,sem ekki geta unnið eða telja sig vera búna að skila nægu vinnuframlagi til þjóðfélagsins. Skilaboðin til eldri borgara eru þessi: Farið aftur út að vinna.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)