Sunnudagur, 31. ágúst 2008
Dagvöruverslun dregst saman
Emil B. Karlsson, forstöðumaður rannsóknarseturs verslunarinnar, við háskólann á Bifröst, segir framtíðarspá sýna 9% samdrátt í dagvöruverslun á þessu ári. Gera megi ráð fyrir svipuðum samdrætti í annarri verslun.
Velta í smásöluverslun jókst um 11% á föstu verðlagi í fyrra. Emil segir horfur í efnahagsmálum landsins gefa tilefni til framtíðarspár sem sýna muni minni dagvöruverslun þetta ár en á því síðasta. Líkur séu einnig á samdrætti í annarri verslun.
210 kaupsamningar verslunarhúsnæðis voru gerðir í fyrra, eða rúmum 40% fleiri en árið áður. Á síðustu 10 árum hefur rými undir verslunarhúsnæði stækkað um rúman helming. Emil telur góðæri verslunarmanna nú komið í nokkra biðstöðu. (ruv.is)
Þaðer ekkert undarlegt þó verslun dragist saman eftir yfir 30% gengislækkun krónunnar og stórfellda hækkun á öllum innfluttum vörum.Fólk hefur orðið að draga úr innkaupum og spara við sig.Hið háa eldsneytisverð á hér einnig hlut að máli.Það hefur hins vegar valdið undrun hvað neysla hefur lítið dregist saman fram að þessu.
Björgvin Guðmundsson
8
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 31. ágúst 2008
Friðrik Sophusson hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Samkvæmt auglýsingunni hefur forstjórinn það hlutverk, að framfylgja stefnu stjórnar Landsvirkjunar og gæta hagsmuna fyrirtækisins í hvívetna.
Gerðar eru kröfur til umsækjenda um háskólamenntun, sem nýtist í starfi, stjórnunar- og rekstarreynslu, yfirgripsmikillar þekkingar og reynslu á sviði fjármála, framúrskarandi samskiptahæfni og góðrar tungumálakunnáttu. Þá er þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
Umsóknarfrestur er til 12. september.(mbl.is)
Friðrik hefur gegnt starfi forstjóra Landsvirkjunar vel.Hann fór úr starfi fjármálaráðherra í það embætti og hefði mártt búaat við að einhver ófriður yrði um hann í hinu nýja embætti en svo varð ekki. Hann hefur verið farsæll í starfi.Friðrik ætlar nú að slaka á þegar hann verður 65 ára.Kona hans,Sigríður Dúna, er að taka við embætti sendiherra Íslands í Osló og Friðrik ætlar að vera þar með konu sinni.Þeim er óskað velfarnaðar.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Starf forstjóra Landsvirkjunar auglýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 31. ágúst 2008
Íslendingar eru gjafmildir.Söfnuðu fyrir skóla í Jemen
Markaðurinn verður einnig starfræktur í Perlunni á morgun milli klukkan 12 og 17:00.
Allur ágóði af sölunni rennur til uppbyggingar skóla fyrir börn og konur í Jemen, fátækasta ríki arabaheimsins. Jóhanna Kristjónsdóttir er driffjöður verkefnisins. Undanfarin þrjú ár hefur Fatimusjóður Jóhönnu styrkt börn í Sanaa, höfuðborg Jemens, til að komast í skóla með árlegu framlagi. Áhugasamir stuðningsforeldrar hafa lagt verkefninu lið frá upphafi og styrkja íslenskar fjölskyldur nú 126 börn til náms.(mbl.is)
Þetta er frábært framtak.Hér hafa Íslendingar enn einu sinni sýnt,að þeir eru gjafmildir og vilja styðja góð málefni innan lands sem erlendis.Ég er mjög hrifinn af þessu framtaki og tel,að konurnar sem beittu sér fyrur söfnuninni eigi þakkir skilið.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Skólinn er í höfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 31. ágúst 2008
Hið opinbera reisi hjúkrunarheimili,ekki einkaaðilar
Sunnudagur, 31. ágúst 2008
Tímabært að stokka kvótakerfið upp
Viðskipti með kvóta hafa verið mjög lítil á því fiskveiðiári sem nú er að ljúka og verð hefur lækkað. Á það einkum við um varanlegar aflaheimildir, hvort sem það er í stóra eða smáa kerfinu.Þau litlu viðskipti sem eigi sér stað eru stunduð af bönkunum, sem eru að færa til skuldir á milli viðskiptavina sinna. Bankarnir hafi verið tregir til að lána fyrir viðskiptum með kvóta. Ekki er talið að þetta ástand muni eitthvað lagast á því fiskveiðiári sem gengur í garð á mánudag.
Verð á leigukvóta hefur hins vegar verið að hækka og viðskiptin eitthvað líflegri þó að þau séu langtum minni en áður tíðkaðist.
Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, genr svo langt að segja að komandi fiskveiðiár verði smábátasjómönnum afar erfitt. Nú muni menn í fyrsta sinn finna verulega fyrir þeim kvótaskerðingum sem hafa átt sér stað.
Menn gátu aðeins deyft höggið með því að flytja aflaheimildir yfir á þetta fiskveiðiár, sem er að verða búið, en möguleikar til þess núna eru hverfandi. Ég óttast að fyrir marga eigi komandi fiskveiðiár eftir að verða mjög erfitt, og þarnæsta líka ef halda á þessari dauðans vitleysu áfram að halda þorskinum svona niðri, segir Arthur og telur hætt við að einhverjir neyðist jafnvel til að selja kvóta eða að bankar taki yfir báta þeirra og selji áfram.
Menn eru lamaðir yfir því hvað bankarnir hafa verið tregir til að lána fyrir kvóta, segir hann.
Að sögn Reynis Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Kvótamarkaðarins, er ekki farið að bera mikið á gjaldþrotum í sjávarútvegi þó að einhverjir séu kannski að lenda í greiðsluvandræðum. Hann segir að hið sérstaka hafi gerst á fiskveiðiárinu, sem nú sé að ljúka, að seljandinn hafi tekið alla skerðinguna á sig. Aflaheimildir í þorski hafi verið skertar um 33% og verðið hafi lækkað sem því nemur.(mbl.is)
Það er tími til kominn að stokka kvótakerfið alveg upp eða að afnema það með öllu og innleiða nýtt.
Ýmsar leiðir eru til. Fyrna má aflaheimildir á hæfilega löngum tíma og úthluta að nýju gegn gjaldi.Innnkalla má allar veiðiheimildir í einu lagi og úthluta á ný gegn gjaldi eða bjóða allar heimildir upp.Í þriðja lagi mætti afnema kvótakerfið að 'öllu leyti eða að hluta til og taka upp sóknarkerfi að hluta eða öllu leyti.Óbreytt ástand gengur ekki lengur.
Björgvin Guðmundsson
![]() |
Nýtt fiskveiðiár mörgum erfitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |