Öldruðum áfram haldið við fátæktarmörk!

 

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir 2018 á lífeyrir hjá  einhleypum öldruðum og öryrkjum að hækka um 4,7% frá áramótum.Auk þess kemur örlitil hækkun til viðbótar til þess að  upphæð lífeyris einstaklinga fyrir skatt nái 300 þúsund á mánuði í samræmi við það,sem ákveðið var í tíð ríkisstjórnar Sigurðar Inga,þegar ný lög um almannatryggingar voru samþykkt á alþingi. Þá var ákveðið að lifeyrir mundi hækka árið 2018 í sömu fjárhæð og lágmarkslaun en þau verða 300 þúsund á mánuði fyrir skatt.5% verkafólks er á lágmarkslaunum en hinir sem betur fer á hærri töxtum.Því er það furðulegt,að lifeyrir aldraðra skuli miðaður við slíkan pappírstaxta.En á þennan hátt er tryggt að aldraðir  og  öryrkjar séu áfram  niður við fátæktarmörk!

Nýja ríkisstjórnin,sem er undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, hækkaði ekkert lífeyri aldraðra og öryrkja í jólamánuðinum.Aldraðir og öryrkjar,sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingum og engan lífeyrissjóð voru látnir halda jólin með 197 þúsund kr í lífeyri eftir skatt i mánuðinum, þeir sem eru í sambúð eða hjónabandi.Og einhleypir fengu 230 þúsund kr eftir skatt í mánuðinum.Þetta var jólagjöf ríkisstjórnar Vinstri grænna til aldraðra og öryrkja og allir geta litið í eigin barm og séð, að ekki er unnt að halda jól á þessari hungurlús. Það er ekki einu sinni unnt að greiða öll brýnustu útgjöldf af þessu  lítilræði.Lyf eða læknishjálp verða oft útundan en það er mannréttindabrot.Jólamaturinn verður fábrotinn, þegar stjórnvöld skammta öldruðum og öryrkjum svona naumt.Og erfitt er fyrir afa og ömmu,langafa og langömmu að gefa jólagjafir, þegar rikisstjórnin þrýstir lífeyrinum svona niður. 

Það breytir engu þó lífeyrir hækki í byrjun árs 2018 um 4,7%.Bæði Öryrkjabandalag Íslands og Landssamband eldri borgara hafa móttælt því við stjórnvöld, að svo naumt eigi að skammta öldruðum og öryrkjum áfram. Aðeins 29% öryrkja fær örlitla viðbótarhækkun.!.Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands var í viðtali á Hringbraut,sjónvarpsstöð.Hún sagðist ekki skilja hvernig kjararáð,ríkisstofnun, úrskurðaði  á grundvelli laga og launaþróunar, að laun stjórnmálamanna og embættismanna ættu að hækka um marga tugi prósenta og langt til baka á sama tíma og ríkisvaldið úrskurðaði að á grundvelli 69 . greinar laga um almannatryggingar,sem einnig ætti að byggja á launaþróun, að laun öryrkja (og aldraðra) ættu  að hækka um 4,7%.( launahækkun þingmanna   2016  44%,laun 1,1 milljón fyrir utan aukagreiðslur,launahækkun ráðherra  36% , laun 1,8 milljón fyrir utan aukagreiðslur, laun forsætisráðherra hækkuð í rúmar 2 millj fyrir utan aukagreiðslur.Þetta gerðist haustið 2016 en fyrr á árinu,1.júní, höfðu þessir aðilar einnig fengið mikla hækkun ) Meðallaun í landinu eru tæpar 700 þúsund kr fyrir skatt. Það er því ljóst,að það stenst ekki að halda lífeyri aldraðra og öryrkja svo langt niðri eins raun ber vitni. Það er furðulegt, að Vinstri  grænir, sem kalla sig róttækan vinstri flokk, skuli standa að því að níðast á þennan hátt á kjörum aldraðra og öryrkja.

Í umræddu viðtali við Þuríði Hörpu Sigurðardóttur formann Öbi á Hringbraut sagði hún frá því, að svo virtist sem stjórnvöld vildu að kjarabætur, sem öryrkjar hugsanlega fengju yrðu einhvers konar skiptimynt gegn því að öryrkjar samþykktu starfsgetumat.En stjórnvöld hafa um tveggja ára skeið þrýst mjög á, að öryrkjar samþykktu starfsgetumat.Ríkisstjórn Sigurðar Inga og Bjarna Ben lagði mikla áherslu á það 2016 við afgreiðslu á nýjum lögum um almannatryggingar.Ríkisstjórn Sigurðar Inga gekk svo langt gegn Öryrkjabandalaginu,að hún beitti Öbi þvingunaraðgerðum.Þegar Öbi var ekki tilbúið að samþykkja starfsgetumatið strax ,vildi kynna sér það betur,sem eðlilegt er, þá beitti ríkisstjórn Sigurðar Inga öryrkja hefndaraðgerðum: Ríkisstjórnin ákvað að öryrkjar fengju ekki sömu kjarabætur og aldraðir!! Þetta var fáheyrt og minnti helst á vinnubrögð í austantjaldslöndum. Krónu móti krónu skerðingin var afnumin hjá öldruðum en hún var látin  haldast hjá öryrkjum og er þar enn í gildi.Þetta var gert i hefndarskyni  gegn öryrkjum.Og ríkisstjórn Sigurðar Inga komst upp með þetta!Það eru viðhöfð   sömu vinnubrögð  nú gegn öryrkjum og ríkisstjórn Sigurðar Inga beitti. Nýja ríkisstjórnin reynir að þvinga öryrkja til hlíðni i starfsgetumatsmálinu.Það er lýgilegt. Það er furðulegt.Þetta er eins og í bananalýðveldi. Og samkvæmt frásögn nýs formanns Öbi  virðist ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur vera að taka upp  þessi sömu þvingunarvinnubrögð!

Björgvin Guðmundsson

Fréttablaðið 11.jan.2018

www.gudmundsson.net

 


Bloggfærslur 11. janúar 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband