Föstudagur, 5. mars 2010
Landsframleiðslan dróst saman um 6,5*% sl. ár.Útflutningur jókst um 6,2%
Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 6,5% á árinu 2009. Þessi samdráttur varð eftir samfelldan hagvöxt frá og með árinu 1993 og er samdrátturinn sá mesti sem mælst hefur frá því að gerð þjóðhagsreikninga hófst á Íslandi árið 1945. Hagvöxtur á árinu 2008 er talinn hafa numið 1%.
Samdráttur landsframleiðslu á liðnu ári kemur fram í miklum samdrætti þjóðarútgjalda, 20,1%. Samdráttur varð í öllum þáttum þjóðarútgjalda, einkaneysla dróst saman um 14,6%, samneysla um 3% og fjárfesting um 49,9%. Aftur á móti jókst útflutningur um 6,2% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 24%. Þessi þróun olli því að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2009, 120 milljarðar króna, borið saman við 42 milljarða króna halla árið áður. Þessi mikli bati varð til þess að samdráttur landsframleiðslu varð mun minni en nam samdrætti þjóðarútgjalda (heimasíða Hagstofu)
Þjóðarútgjöld drógust saman um 20,1%.Samdráttur landsframleiðslu varð minni en ella vegna mikillar aukningar á útflutningi og aukinna þjónustuviðskipta.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.