Slegist um skólastjórastöðu í Úlfarsárdal

Þrjátíu umsækjendur voru um stöðu skólastjóra í samreknum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili í Úlfarsárdal sem tekur til starfa í haust. Umsóknarfrestur rann út fyrir helgi og sóttu 23 konur um stöðuna og sjö karlar. Á meðal umsækjenda voru Hermann Valsson, varaborgarfulltrúi, og Petrína Baldursdóttir, bæjarfulltrúi í Grindavík. Báðum var nýverið hafnað í prófkjörum flokka sinna.

Hermann hafnaði í 6. sæti í forvali VG í Reykjavík og Petrína sem verið hefur oddviti framsóknarmanna í Grindavík undanfarin ár endaði í 7. sæti í prófkjöri flokksins. Bæði eru kennaramenntuð.

Nýr skóli í Úlfarsárdal mun rúma allt skólastarf fyrir börn á aldrinum eins árs til tólf ára; leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili. Með þessu fyrirkomulagi verður leitað nýrra leiða til að auka nýbreytni og sveigjanleika í skólastarfi. Nýi skólinn mun taka til starfa haustið 2010. Þá verða í honum börn til og með 5. bekk grunnskóla. Áherslur í starfseminni verða listir og lýðheilsa, umhverfismennt og læsi.

(visir.is)

Það er nýjung í skólastarfi í Reykjavík að grunnskóli og leikskóli skuli samrekin og undir einu þaki.En mér líst vel á þá nýjung.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Þetta hafa Reykvíkingar lært af Mosfellingum. Líttu bara á Lágafellsskóla.

Sigurður Hreiðar, 16.3.2010 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband