Fjármálaráðherra: Ísland ekki háð láni frá AGS á þessu ári

Miðað við ástand efnahagsmála í dag getur Ísland vel komist í gegnum þetta ár án láns frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í samtali við norska vefinn e24 í dag.

Vefurinn greinir frá því að fyrir helgi hafi borist fréttir af því að Ísland og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi komið sér saman um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands með tilheyrandi lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Endurskoðunin hefur dregist mánuðum saman.

En þrátt fyrir að Íslendingar séu ekki háðir lánum frá AGS núna segir Steingrímur þó mikilvægt að mál Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum séu komin á hreyfingu. Það sé til þess fallið að draga úr óvissu.

Þá er haft eftir Steingrími að hagkerfið á Íslandi sé aftur farið að þróast í rétta átt eftir miklar sviptingar í upphafi ársins. Hann bendir á að viðskiptajöfnuður sé Íslendingum mjög hagstæður og að jafnvægi sé komið á gengi íslensku krónunnar.

Steingrímur segir jafnframt að það sé mikill munur á stöðu Íslands og Grikklands að því leytinu til að Íslendingar þurfi ekki að endurfjármagna mikil lán á næstu mánuðum.
(visir,is)

Það er gott til þess að vita að Ísland sé ekki háð láni AGS í ár.En vissulega mun sú staðreynd,að AGS opnar fyrir lán til Íslands bæta stöðu Íslands á erlendum mörkuðum.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband