Laugardagur, 17. apríl 2010
Þorgerður Katrín hættir sem varaformaður
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að hætta sem varaformaður flokksins og víkja tímabundið af þingi. Þetta kom fram í ræðu Þorgerðar á flokksráðsfundi í Reykjanesbæ í í dag. Hún sagði að trúverðugleiki sinn hefði skaðast.
Ég sé að ég hef ekki fyllilega sama traust og ég hef áður notið. Ég hef því eftir mikla umhugsun komist að þeirri niðurstöðu að það sé best fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og sakir standa að ég láti af embætti varaformanns og ég fari í tímabundið leyfi sem þingmaður meðal annars með tilliti til þeirra þingnefndar sem er að fjalla um rannsóknarskýrslunnar," sagði Þorgerður Katrín.
Hún kom víða við í ræðu og sagði meðal annars að hún og Kristján Arason eiginmaður hennar hafi gert mistök með því að þátt í ríkjandi menningu og viðskiptaháttum bankanna. Störf hennar sem stjórnmálamanns í aðdraganda hrunsins hafi einkennst af andavaraleysi.(visir,is)
Það er virðingarvert af Þorgerði Katrínu að axla ábyrgð og segja af sér sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins.Ég tel það einnig eðlilegt að hún víki af þingi tímabundið.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.