Um leið og búið er að kjósa er talað um að hækka heita vatnið!

Eigi markmið fimm ára áætlunar um fjárþörf Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að nást, þarf mikla hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins. Á það við um allt nema kalda vatnið. Þar mun gjaldskrá standa í stað.

Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður OR, segir að þessar hækkanir muni dreifast yfir fimm ár, verði ákveðið að ná markmiðunum. Það sé nýrrar stjórnar að ákveða. Unnið hafi verið að útreikningum miðað við lánasamsetningar og fleira og þeirri vinnu hafi lokið í síðustu viku.

Upplýsingarnar voru lagðar fyrir stjórnarfund í gær, en þær eru svar við fyrirspurn Sigrúnar Elsu Smáradóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í stjórn OR, sem lögð var fram á síðasta stjórnarfundi.

Spurður hvers vegna upplýsingarnar koma fram þremur dögum eftir kosningar segir hann það einfaldlega vera vegna þess að vinnu hafi ekki lokið fyrr. Ágætt hefði verið ef þær hefðu legið fyrir þegar kosið var á laugardag, en það hafi ekki náðst. Vissulega hefði verið hægt að setja meiri kraft í vinnuna, en það hafi ekki verið gert.

„Ég hef rætt það inni í borgarráði að auka þurfi handbært fé og ég er ekkert að fela þetta. Fjárþörfin lá fyrir en ekki var búið að reikna ítarlega út hve mikið þyrfti að hækka gjaldskrá til að ná markmiðum heildarstefnu Orkuveitunnar."

Guðlaugur minnir á að það hafi verið samhljóða niðurstaða fulltrúa meiri- og minnihluta í aðgerðarhópi að hækka gjaldskrár ekki meira á nýliðnu kjörtímabili. Við það hafi verið staðið og því sé það verkefni nýrrar stjórnar að taka ákvörðun um fyrirhugaðar hækkanir.- (visir.is)

Ég tek ekki mark á því að  útreikningar hafi ekki verið tilbúnir fyrir kosningar.Auðvitað átti að leggja  þessi mál fyrir kjósendur fyrir kosningar en ekki eftir kosningar.Það átti að segja kjósendum fyrir kosningar að það þyrftiu að hækka verð á heitu vatni um 37%.Það var ekki gert.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband