Iðnaðarráðuneytið best af ráðuneytunum

Iðnaðarráðuneytið er á meðal efstu 25% stofnana í þremur flokkum í könnun SFR á Stofnun ársins, sem Capacent Gallup gerði. Flokkarnir sem um ræðir eru „Trúverðugleiki stjórnenda", „Starfsandi" og „Ánægja og stolt".

Niðurstöður úr könnuninni voru kynntar í vor en þetta var í sjötta sinn sem SFR stóð að vali á Stofnun ársins. Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR og annarra ríkisstarfsmanna  á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað.

Af öllum ráðuneytunum kom iðnaðarráðuneytið best út í könnuninni.(visir.is)

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband