Búist við mótmælum við setningu alþingis

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segir að þingsetningu á laugardag hafi ekki verið flýtt útaf boðuðum mótmælum. Lögreglan verður ekki með heiðursvörð vegna sparnaðar.

Hátt í þrjú þúsund mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli þegar alþingi var sett í október á síðasta ári. Eggjum var kastað að alþingismönnum og forseta Íslands sem áttu fótum sínum fjör að launa.

Samkvæmt venju er alþingi sett í byrjun októbermánaðar og hefur athöfnin hingað til hafist klukkan hálf tvö. Mótmælendur tóku mið af þessari venju þeir boðuðu til nýrra mótmæla á laugardag. Alþingi ákvað hins vegar breyta tímasetningunni og hefst athöfnin klukkan hálf ellefu um morguninn.

Margir hafa litið svo á að með þessu sé alþingi að reyna forðast mótmælendur.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vísar þessu á bug og segir að ákvörðun um breyta tímasetningu hafi verið tekin á fundi forsætisnefndar í sumar og að sú ákvörðun hafi ekki tengst boðuðum mótmælum.

„Þingsetningu var ekki flýtt. Þingsetning er klukkan 10.30. Hún kemur upp á laugardag að þessu sinni og þingfundir á laugardag byrja klukkan 10.30 og þannig hefur það verið síðan ég varð forseti Alþingis," segir Ragnheiður Ásta Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.

Alþingi var síðast sett á laugardegi árið 2005 en þá hófst athöfnin klukkan hálf tvö. (visir.is)

Búast má við talsverðum mótmælum n.k. laugardag.En væntanlega verða þau mótmæli friðsamleg. Það leysir engan vanda að beita ofbeldi.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband