Hvað gerir alþingi í kjaramálum aldraðra?

Undanfarið hafa samtök aldraðra,Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík, rætt við alþingismenn um kjaramál aldraðra. Einkum hefur verið rætt um kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja á miðju ári 2009 svo og um kjaraskerðingu og kjaragliðnun á krepputímanum en á því tímabili var lífeyrir aldraðra og öryrkja frystur en lágmarkslaun hækkuðu talsvert.Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja um 20% strax auk afturköllunar á kjaraskerðingunni,sem tók gildi 1.júlí 2009.Ekkert hefur bent til þess, að ríkisstjórnin ætlaði að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja vegna kjaraskerðingar á krepputímanum. Þess vegna   hafa aldraðrir leitað beint til alþingis.Nú er spurningin sú hvað alþingi gerir í málefnum lífeyrisþega.Valdið liggur hjá alþingi.Ef ríkisstjórnin ætlar að hundsa réttmætar kjarakröfur aldraðra og öryrkja verður alþingi að taka í taumana  og leiðrétta kjörin.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband