Allir flokkar neikvæðir gagnvart öldruðum

 

 

 

Ég hef unnið að málefnum eldri borgara í 14 ár.Ég lét af störfum fyrir 15 árum fyrir aldurs sakir og hef mestallan  tímann síðan unnið að málefnum eldri borgara, í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík, sem formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í Rvk og með því að skrifa greinar í dagblöðin um málefni aldraðra.Ég hef nokkuð góða yfirsýn yfir þennan málaflokk og tel mig hafa þokkalega þekkingu á honum. Því miður er dómur minn sá, að allir stjórnmálaflokkar hafa brugðist eldri borgurum.Það er alveg sama hvaða stjórnmálaflokkar hafa verið við  völd; þeir hafa allir  hundsað  aldraða. Ástæðan er sérstakt rannsóknarefni. Hún er óskiljanleg.Það er hins vegar misjafnt hvað stjórnvöld þykjast gera mikið fyrir eldri borgara.Sumar ríkisstjórnir berja sér á brjóst og látast vera að vinna mikil afrek fyrir aldraða.En yfirleitt  er engin innistæða fyrir þeirri afrekaskrá.Eldri borgarar vona alltaf, að breyting verði á og einstaka sinnum láta ráðamenn einhverja mola falla af borðum til aldraðra. En það hvarflar ekki að ráðamönnum að  taka sér tak í þessum málaflokki og gerbreyta um stefnu, lyfta kjörum aldraðra svo myndarlega upp, að eldri borgarar geti  lifað með reisn síðasta æviskeið sitt. 

Ný stjórn eins og eldri stjórnir 

Ný ríkisstjórn, sem var að taka við völdum, er ekki frábrugðin fyrri stjórnum í þessu efni.Hún fetar troðnar slóðir; gerir ekkert fyrir eldri borgara. Það eina bitastæða, sem mátti sjá í stjórnarsáttmálanum varðandi eldri borgara, var það, að  þeir mættu vinna örlítið lengur en áður án þess að tryggingalífeyrir þeirra yrði skertur.Rétt eins og aldraðir,sem búnir eru að vera á vinnumarkaði alla sína starfsævi, vilji helst fá að vinna meira, þegar þeir eru komnir á eftirlaunaaldur.Fyrsta krafan er að sjálfsögðu sú, að eldri borgarar geti lifað af lífeyri sínum án  þess að vera á vinnumarkaðnum.En það er engin leið að gera það í dag.197 þús kr eftir skatt hafa eldri borgarar, sem eru í sambúð eða hjónabandi; eftir skatt,þeir,sem eingöngu hafa tekjur  frá TR.Þannig  er þetta í  miðju góðærinu.Og það skiptir engu þó Félag eldri borgara hafi sagt frá því, að dæmi væru um að eldri borgarar hringdu til félagsins og segðu, að þeir ættu ekki fyrir mat.Samt gera stjórnvöld ekkert; samt lætur ný stjórn málið vera. Það breytir engu þó vinstri græn séu komin í stjórnina. Það hefði átt að laga kjör aldraðra og öryrkja á fyrsta degi  ríkisstjórnarinnar með útgafu bráðabirgðalaga.Nei það datt ekki nýjum ráðamönnum i hug.En þeir hefðu gert það, ef banna hefi þurft verkfall. Þá hefði ekki staðið á því að gefa út bráðabirgðalög. 

Nú hefur fjárlagafrumvarp nýju ríkisstjórnarinnar verið lagt fram.Ekki ber það þess merki, að vinstri flokkur sé kominn í stjórnina.Frumvarpið hefði sennilega verið alveg eins þó íhaldið og framsókn ein hefðu lagt það fram.Alla vega  er frumvarpið mjög svipað frumvarpinu, sem Benedikt Jóhannesson lagði fram; örlítið meiri framlög til heilbrigðismála og menntamála en lítil framlög til barnafólks,svo sem í barnabætur og til færðingarorlofs og húsnæðismálin  alveg útundan. Ekkert er lagt til útrýmingar á fátækt eða til annarra mála, sem flokkast geta undir félagshyggju.Hálfur milljarður í niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði á miðju næsta ári,  sem  átti að koma fyrir 8-10 árum er ræfilslegt framlag; Kristján Þór Júliusson lofaði sem heilbrigðisráðherra 800 millj í þennan málaflokk sl haust  en það var svikið.Nú segist ríkisstjórnin ætla að lækka tannlæknakostnað  aldraðra  en eftir er að sjá hvort betur verður staðið við það en loforðið sem fyrri ríkisstjórn gaf. 

Ekkert gert heldur fyrir öryrkja 

Ég reiknaði með því, að ríkisstjórnin mundi gera eitthvað fyrir öryrkja í jólamánuðinum enda þótt lífeyrir aldraðra væri ekki hækkaður um eina krónu fyrir jólin.En því miður; svo varð ekki.Öryrkjar fengu  ekki heldur  neinar kjarabætur í jólamánuðinum.Öryrkjar hafa verið  enn verr staddir en aldraðir frá því ný lög um almannnatryggingar voru sett 1.anúar sl. Með nýju lögunum var krónu móti krónu skerðingin afnumin hjá eldri borgurum en hún var látin haldast hjá öryrkjum.Það þýddi, að ef öryrki vann sér inn nokkrar krónur, til dæmis 40 þúsund kr, var jafnhá upphæð dregin af lífeyri öryrkjans,framfærsluviðmiðinu.Öryrkinn stóð því í sömu sporum á eftir eins og hann hefði ekki unnið fyrir neinu.Þetta var forkastanlegt.Þetta var refsiaðgerð, sem ríkisstjórn Sigurðar Inga og Bjarna Ben greip til gegn  öryrkjum.Ég hefði haldið, að Vinstri græn mundu leiðrétta þennan ósóma strax fyrir jól  og  hækka lífeyrinn eitthvað í leiðinni, þar eð hann er svo lágur, að enginn leið er að lifa af honum.Þetta gildir bæði fyrir aldraða og öryrkja, sem eingöngu hafa tekjur fra almannatryggingum.Nýr félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, átti fund með fulltrúum Öryrkjabandalagsins og talaði þar fallega við þá um að hann ætlaði að bæta kjör þeirra og aðstöðu.Fulltrúar Öbi fóru fullir bjarsýni frá ráðherra en vonbrigði þeirra voru mikil, þegar þeir sáu fjárlagafrumvarpið og engar kjarabætur var að finna þar þeim til handa í jólamánuðinum.Því miður ætla Vinstr grænir að staðfesta kenningu mína um, að það sé alveg sama hvaða flokkur sé í stjórn: Þeir hundsa allir eldri borgara og raunar öryrkja einnig.

 Björgvin Guðmundsson

Fréttablaðið 19.desember 2017

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband