Pólitík á lágu plani

 

Ólafur   F. Magnússon,borgarfulltrúi,var hvatamaður að  myndun meirihluta í borgarstjórn gegn Sjálfstæðisflokknum. Í gær  sleit hann þessum meirihluta og gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.Það er ekki unnt að treysta stjórnmálamanni sem þannig hagar sér.Hann talaði 6  sinnum við Dag B.Eggertsson,borgarstjóra í gær og neitaði því jafnoft að hann væri að mynda  meirihluta með Sjálfstæðisflokknum.Tuttugu mínútum fyrir blaðamnnafundinn í gær ( kl. 18.40) viðurkenndi hann loks,að hann væri að semja við íhaldið. Hann, hafði ekki samráð við neina samstarfsmenn sína í borgarstjórnarflokki F-listans,ekki einu sinni Margréti Sverrisdóttur,varamann sinn í borgarstjórn. Hún styður ekki nýja meirihlutann.Það var enginn málefnaágreiningur milli Ólafs og annarra í gamla meirihlutanum. Hann nefndi engin mál sem hann væri   óánægður með.Svo virðist því sem hann hafi látið til leiðast að sprengja meirihlutann út á það eitt,að hann fengi að vera borgarstjóri i  rúmt ár!

Það sem nú hefur gertst í borgarstjórn sýnir,að  pólitíkin í Reykjavík er komin á lágt plan. Ef ekki er lengur unnt að treysta samningum milli flokka og manna í pólitikinni þá er illa komið. Ég fullyrði,að þetta hefði ekki getað gerst í borgarstjórn Reykjvíkur  hér áður þegar meiri festa var í stjórnmálunum.Í stjórnmálum verða menn að geta treyst hver öðrum. en það virðist ekki lengur unnt í borgarstjórn.

Ég er sammmála Ingibjörgu Sólrúnu  um að þessi nýi meirihluti er mjög veikur og óvíst að hann  lifi út kjörtímabilið.

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.


mbl.is Ingibjörg Sólrún: telur nýjan meirihluta óstarfhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem veldur mér orðið áhyggjum er að hve óvandað fólk er komið til áhrifa í pólitíkinni. Erum við að sigla í sama forapytt og kanar? Eingöngu fólk velst til pólitískara starfa sem er að hugsa um sinn eigin rass?

Milljón í fatakaup hjá framsókn, borgarstjórnarstóll er veifað fram í Ólaf og hann hleypur í hann, þar sem hann veit að hann er að syngja sinn pólitíska svanasöng.

Er þetta fólk sem við viljum velja til ábyrgðastarfa fyrir okkur?? 

Sigurður H. Einarsson (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband