Vilhjálmur hættir ekki sem borgarfulltrúi

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segist ekki ætla að

hætta sem borgarfulltrúi enda telji hann sig hafa axlað fulla ábyrgð í REI- málinu. Þá sagði hann að hann ætli nú að nota tímann og fara vel yfir stöðu sína áður en hann ákveði hvort hann taki aftur við sem borgarstjóri.  Þetta er niðurstaðan af blaðamannafundinum,sem Vilhjálmur hélt  i Valhöll ú dag.

Vilhjálmur viðurkenndi,að staða  hans hefði veikst og mál þessi hefðu  verið erfið fyrir  Sjálfstæðisflokkinn.Hann sagðist ætla að reyna að endurheimta traust borgarbúa.

Ég hefi vissa samúð með Vilhjálmi. Mér finnst fjölmiðlar hafa verið full aðgangsharðir við hann og óneitanlega minnir þetta á það þegar fjölmiðlar ofsóttu Guðmund Árna Stefánssson sem ráðherra og hættu ekki fyrr en hann sagði af sér.Ég tel ekki að það sé hlutverk fjölmiðla að ákveða hvort einhver hættir í stjórnmálum. Fjölmiðlar eru einnig mjög misjafnir eftir því hver í hlut á.Ef um sterkan stjórnmálamann er að ræða leggja þeir ekki í hann. T.d. fór sjónvarpið alltaf silkih0nskum  um Davíð Oddsson.En nú hamast sjónvarpið á Vilhálmi.Það er mjög misjöfn meðferð.

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband