Útlendingum hér á landi fjölgar

 i

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað hérlendis á undanförnum árum og svo var einnig árið 2007. Þann 1. janúar 2008 voru skráðir hérlendis 21.434 erlendir ríkisborgarar. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda var þá 6,8% samanborið við 6% ári áður. 

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að þessum tölum má þó taka með þeim fyrirvara að það getur dregist að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir hjá þjóðskrá og á sama hátt geta liðið nokkrir mánuðir þar til einstaklingar sem flytjast af landi brott eru felldir úr íbúaskrá.

 

Erlendum ríkisborgurum fjölgaði úr 18.563 í 21.434 árið 2007. Það er 15,5% fjölgun á milli ára. Það er þó minni fjölgun en tvö síðustu ár en erlendum ríkisborgurum fjölgaði um 34,7% árið 2006 og 29,5% 2005.

Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda á Íslandi er nú hærra en á hinum Norðurlöndunum en árið 2006 var hlutfall erlendra ríkisborgara næst hæst í Svíþjóð, 5,4%. „Hafa ber þó í huga að á hinum Norðurlöndunum er lengri hefð fyrir komu innflytjenda og því fleiri sem fengið hafa ríkisfang í nýja landinu. Fjölmennastir erlendra ríkisborgara hér á landi voru Pólverjar (8.488), Litáar (1.332), Þjóðverjar (984) og Danir (966), líkt og verið hefur undanfarin ár."

Fram til ársins 2003 voru konur jafnan fjölmennari en karlar í hópi erlendra ríkisborgara. Síðan 2004 hafa karlar hins vegar verið mun fjölmennari en konur meðal erlendra ríkisborgara. Í árslok 2007 voru karlar með erlent ríkisfang 8,1% allra karla en konur með erlent ríkisfang 5,5% allra kvenna.

Sumir vilja takmarka aðstreymi útlendinga til landsins. Það er ekki unnt að því er EES svæðið varðar. Flutningar vinnuafls  og fólks eru frjálsir innan EES svæðisins.Hins vegar er unnt að setja skorður við flutningi vinnuafls hingað frá öðrum svæðum. Það er heldur ekki mögulegt að krefja fóls frá EES sem hingað kemur um sakavottorð eins og frjálslyndir hafa minnst á. Það gilda sömu reglur fyrir alla innan EES svæðisins. Íslendingar þurfa ekki að framvísa sakavottorði,þegar þeir fara til EES landa og  þeir geta ekki farið fram á sakavottorð frá þeim,sem hingað koma.

Björgvin Guðmundsson 

 


mbl.is 6,8% íbúa erlendir ríkisborgarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband