Krónan dugar ekki lengur

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, talaði sagði á fjölmennum fundi á Húsavík í gær að við undirritun kjarasamninga í vetur hefði mönnum verið ljóst að erfiðleikar væru í aðsigi en taldi að enginn hefði átt von á þeirri holskeflu sem riðið hefur yfir upp á síðkastið. Ingibjörg vék að umræðu um að taka upp evru, ýmist með eða án aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

„Það er ljóst að það verður að gera einhverjar róttækar ráðstafanir vegna gjaldmiðilsins en persónulega sé ég ekki að lausnin sé að hoppa inn í Evrópusambandið og taka upp evru, svona rétt sem snöggvast. Sterkur gjaldmiðill myndi breyta mörgu til hins betra en það eru fjölmörg vandamál sem evra og Evrópusambandsaðild myndu ekki leysa við þessar aðstæður,“ sagði Ingibjörg.

Eðlilegt er að það standi í mörgum að ganga inn í ESB. En allir virðast sammmála um að krónan dugi ekki lengur.Sennilega væri  rétt að fela hópi sérfræðinga í fjármálum og peningamálum ( hagfræðingum) að kanna hvaða gjaldmiðil Íslendingar ættu að taka upp í stað  krónunnar,hvort það ætti að vera evra eða einhver annar gjaldmiðill. Verst er að gera ekki neitt.

 

Björgvin Guðmundsson

 


mbl.is Einkarekin velferðarþjónusta óhagkvæmari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband