Héraðsdómur staðfestur í Baugsmáli

Hæstiréttur staðfesti í dag dóma, sem sakborningar í Baugsmálinu hlutu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Var um að ræða lokaþátt málsins sem hófst fyrir sex árum. ´

 

Í héraðsdómi var Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fjárdrátt, og þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, og Jón Gerald Sullenberger, í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að gefa út tilhæfulausan kreditreikning sem hafði áhrif á bókhaldslega stöðu almenningshlutafélagsins Baugs. 

Þar með er Baugsmálinu lokið fyrir dómstólum hér á landi en það hefur tekið 6 ár.Margir telja,að það hafi verið grafið og grafið og leitað að einhverju sakarefni á hendur Baugsfeðgum en  lítið fannst. Og eftirtekjan er rýr.

 

Björgvin Guðmundsson


mbl.is Dómar staðfestir í Baugsmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband