Talsmaður neytenda tekur olíufélögin á teppið

Talsmaður neytenda hefur boðað til sín á fundi fulltrúa olíufélaganna fjögurra, hvers um sig, í byrjun ágúst í því skyni að ræða verðmyndun gagnvart neytendum á bensíni og dísilolíu.

Um er að ræða eftirfarandi olíufélög á neytendamarkaði: Atlantsolía, N1 ásamt Ego, Olís ásamt ÓB og loks Skeljungur ásamt Orkunni.

Fram kemur í tilkynningu frá talsmanni neytenda að boðað sé til fundarins „í því skyni að fá upplýsingar um verðmyndun á olíu á neytendamarkaði í ljósi umræðu sem lengi hefur staðið og fer vaxandi með flökti á gengi og heimsmarkaðsverði á olíu.“

Fram kemur í fundarboði að á þessu stigi sé fyrst og fremst spurt um eftirfarandi:

1.  „Hvernig er verðmyndun á bensíni og díselolíu á neytendamarkaði háttað hjá félaginu (t.d. ef eitthvert sérstakt módel er viðhaft)?

2.  „Er samkvæmni í því hvort og þá hversu fljótt verði á þessum vörum á neytendamarkaði er breytt við breytingar á gengi og við breytingar á heimsmarkaðsverði - annars vegar þegar verð í IKR hækkar og hins vegar þegar verð í IKR lækkar?“

Viðmiðunartímabil sem talsmaður neytenda vísar til í væntanlegri athugun eru fyrstu sjö mánuðir ársins 2008.

Fram kemur að ekki liggi fyrir á þessu stigi hvort einhverjar upplýsingar frá fundunum - og þá hvaða upplýsingar - verði birtar opinberlega.(mbl.is)+

Þetta er gott framtak hjá talsmanni neytenda. Neytendum ofbýður framganga olíufélaganna í verðlagningu olíuvara. Þau hækka alltaf öll í takt,þannig,að ljóst er að um samráð er að ræða,sem er að mínu mati ólöglegt.Nú hefur verð á olíu erlendis hríðfallið en olíufélögin lækka lítið hér heima. Væntanlega  verður talsmaður neytenda harður við olíufélögin og krefst lækkunar í samræmi við lækkun heimmarkaðsverðs

:Fara til baka 


mbl.is Olíufélög boðuð á fundi um verðmyndun gagnvart neytendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband