Mannréttindi verð fórn

Íslendingar telja mannréttindi afar mikilvæg en 69% í könnun Capacent Gallup töldu mannréttindi verð mikilla fórna og áhættu. Aðeins rúm 4% töldu mannréttindi ekki verð fórna og áhættu.

Í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup var kannað hvaða atriði fólk teldi það mikilvæg að þau væru þess verð að taka áhættu og færa fórnir fyrir. Auk mannréttinda voru heimsfriður, frelsi einstaklingsins og baráttan við fátækt þau málefni sem Íslendingar töldu mikilvægust.

Capacent Gallup segir tvö atriði skera sig úr sem þau atriði sem séu minnst verð fórna en það eru eigin trúarbrögð, sem liðlega 58% sögðu ekki verð fórna og áhættu, og sameining Evrópu, sem ríflega 57% segja ekki verða fórna og áhættu.

Þegar niðurstöðurnar voru greindar eftir kyni kom í ljós að konur eru líklegri en karlar til að meta málefni verð þess að færa miklar fórnir og taka áhættu fyrir. Munurinn er mestur þegar kemur að jafnrétti kynjanna en 57% kvenna telja það þess vert að færa miklar fórnir og taka áhættu fyrir en 39% karla eru sömu skoðunar.

Töluvert hærra hlutfall kvenna en karla telur að baráttan gegn kynþáttafordómum sé fórna og áhættu verð en 14% karla telur að baráttan gegn kynþáttafordómum sé ekki fórna eða áhættu verð samanborið við 5% kvenna.(MBL.IS)

Það kemur ekki á óvart,að menn meti mannréttindi mikils. Mikið hefur verið rætt um mannréttindi á þessu ári,m.a. vegna úrskurðar Mannréttindanefndar Sþ.um að kvótakerfið íslenska brjóti mannréttindi.

Björgvin Guðmundsson

 

Fara til baka 


mbl.is Íslendingar telja mannréttindi verð fórna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband