Er komið nóg af álverksmiðjum?

Ég styð það að reist verði álverksmiðja í Helguvík.Undirbúningur er langt kominn og framkvæmdir raunar hafnar. Næg orka hefur verið tryggð. Það  er því erfitt eða ókleift að stöðva framkvæmdir. Auk þess  hafa Suðurnesjamenn  og Reyknesingar orðið fyrir búsifjum,misst stóran vinnnustað,sem er varnarliðið á Keflavíkurflugvelli en áður var búið að selja nær alla þorskkvóta burt úr byggðarlögunum. Hins vegar er meiri spurning með  álver við Bakka.Þar er undirbúningur mikið skemmra á veg kominn.Við skulum byrja á því að bíða eftir hinu samaeiginlega umhverfismati og sjá svo til. Ef unnt er að draga framkvæmdir þar nægilega lengi þannig að þær ógni ekki stöðugleika í íslensku efnahagslífi og  útblástur úr verksmiðjunni verði innan marka þá kemur álverksmiðja þar til greina.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband