Jóhanna opnar nýjan þjónustuvef TR

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, opnaði í dag formlega nýjan þjónustuvef Tryggingastofnunar en þar verður til að byrja með haldið utan um greiðsluyfirlit og tekjuáætlanir og bráðabirgðaútreikningar og einnig verður hægt að fá bráðabirgðaútreikning á netinu.

Jóhanna sagði að um væri að ræða gífurlega framför fyrir viðskiptavini, ekki síst að geta fengið tafarlausan bráðabirgðaútreikning á greiðslum stofnunarinnar til sín og áttað sig þannig á stöðu sinni hverju sinni. Með þessari þjónustu sigldi Tryggingastofnun ríkisins nú hraðbyrði inn í upplýsingaöldina, stórbætti og efldi þjónustu við viðskiptavini sína og gerði hana aðgengilegri.(mbl.is)´

Það er gott  að Tryggingastofnun skuli tileinka sér nýjustu tölvutækni og veita viðskiptavinum aukna þjónustu.Vonandi hækka bætur í kjölfarið.

 

Björgvin Guðmundsson

 


 


mbl.is Nýr þjónustuvefur Tryggingastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband