AGS:Skilyrði fyrir varkárum vaxtalækkunum

Það er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) að skilyrði séu nú að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum á Íslandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Murilo Portugal aðstoðarforstjóra AGS sem gefin var út í trengslum við endurskoðun sjóðsins á áætlun hans og íslenskra stjórnvalda sem samþykkt var í gærdag.

 

Þá segir Portugal í yfirlýsingunni að botni kreppunnar ætti að verða náð á miðju næsta ári og að viðsnúningur í efnahagslífinu myndi hefjast um það leyti.

 

„Ísland hefur komið úr kreppunni með háar erlendar og opinberar skuldir, hærri en menn gerðu sér grein fyrir í upphafi áætlunarinnar," segir Portugal en hann bætir því við að hraðari aðlögun, lengri tími í að aflétta gjaldeyrishöftunum og meiri einbeiting í að endurskipuleggja skuldir einkageirans ættu að duga til þess að skuldirnar yrðu viðráðanlegar og lækki hratt.

 

Portugal segir að endurskipulagning fjármálakerfisins hafi reynst flókin í framkvæmd en áfangar hafi náðst með endurreisn Nýja Kaupþings og Íslandsbanka. Nú sé mikilvægt að ljúka einnig við Landsbanka málið og endurfjármagna þann banka.(visir,is)

Yfirlýsing aðstoðarframkvæmdastjóra AGS um vaxtalækkanir vekur  athygli,þar eð stutt er síðan,að formaður Íslandsdeildar AGS taldi ekki tímabært að hefja vaxtalækkanir.Fagna ber yfirlýsingu aðstoðaarframkvæmdastjórans.Það er algert skilyrði fyrir viðreisn atvinnulífsins að  vextir lækki og það mikið. Stýrivextir í Noregi eru t.d. 1 1/2 % og víða eru þeir 0-1%.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband