Lífeyrir aldraðra á að vera 210 þúsund á mánuði

Neysluútgjöld einstaklinga eru nú til jafnaðar 210 þúsund kr. á mánuði samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Ísland, sem  kunngjörð var 15.desember 2006. ( 9,1% hækkun vísitölu neysluverðs frá 2005 innifalin).Skattar eru ekki meðtaldir.Ég tel eðlilegt, að lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum  sé hinn sami og nemur neysluútgjöldum einstaklinga og raunar tel ég þar um lágmark að ræða, þar eð engir skattar eru inni í tölu Hagstofunnar um meðaltals neysluútgjöld einstaklinga. Í dag er lífeyrir aldraðra einhleypinga  frá almannatryggingum 126 þúsund á mánuði fyrir skatta eða um það bil  113 þúsund á mánuði eftir skatta. Hér er átt við þá, sem einungis hafa lífeyrir frá almannatryggingum og ekki eru í lífeyrissjóði. Þó  ellilífeyrisþegi hafi 40- 60 þúsund á mánuði frá lífeyrissjóði aukast ráðstöfunartekjurnar lítið eða aðeins um þriðjung af lífeyrissjóðstekjunum  vegna skatta og skerðinga. Það er því ljóst, að aldraðir  hafa  hvergi nærri þann lífeyri í dag sem dugar til eðlilegrar framfærslu. Þar vantar um eitt hundrað þúsund krónur á mánuði Krafan er sú,að aldraðir  hafi þann lífeyri sem dugi fyrir framfærslukostnaði..Neyslukönnun Hagstofunnar er eina viðmiðið, sem unnt er  að byggja á í því sambandi.

 

Fengu hungurlús í leiðréttingu

 

 Alþingiskosningar nálgast nú. Sjálfstæðisflokkurinn reynir í aðdraganda kosninga að telja öldruðum trú um að kjör þeirra hafi verið bætt mikið að undanförnu m.a.  með hækkun lífeyris. En þessi hækkun er alger hungurlús. Og  enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn birti tölur um háa prósentuhækkun hjá 400 manna  hópi aldraðra, sem eru á strípuðum bótum frá almannatryggingum , eru hámarksbæturnar í dag aðeins 126 þúsund hjá einstaklingum og duga hvergi nærri til framfærslu. .

 Aldraðir eiga þetta inni hjá ríkinu 

Ef til vill finnst sumum tillaga mín um 210 þúsund króna lífeyri aldraðra á mánuði  vera  róttæk og kostnaðarsöm. Og víst er eru tillögur mínar róttækar. En þær eru samhljóða tillögum  kjaranefndar Félags eldri borgara í Reykjavík. Og þær eru róttækar vegna þess, að ríkisstjórnin hefur hundsað aldraða til margra ára og þess vegna hafa kjör eldri borgara dregist aftur úr kjörum  láglaunafólks á almennum vinnumarkaði.Aldraðir eiga  þessa leiðréttingu því inni hjá stjórnvöldum.Það kostar mikla fjármuni að leiðrétta kjör aldraðra. En Íslendingar eru rík þjóð.Stjórnvöld hafa haft 40 milljarða af öldruðum sl. 12 ár. Nú er komið að skuldadögum. Nú þurfa stjórnvöld að leiðrétta kjör aldraðra og borga skuldina til baka. Það eru nógir peningar til. Ríkið á þessa peninga og meira til í geymslu í Seðlabankanum.

Björgvin Guðmundsson




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Ásbjörnsson

Bendi þér Björgvin á færslu mína um málefni aldraðra.  Í greininni Að deponera skattinn http://sas.blog.is/blog/sas/entry/132285/

Sigurður Ásbjörnsson, 26.2.2007 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband