Ójöfnuður hefur aukist meira hér en í Bandaríkjunum!

 

  

Umræðan um tekjuskiptinguna á Íslandi og aukinn ójöfnuð heldur áfram. Prófessorar við háskólann deila enn um hvað rétt sé í því efni. Þeir Þorvaldur Gylfason og Stefán Ólafsson hafa birt greinargóðar ritgerðir um aukinn ójöfnuð á Íslandi  síðustu 12 árin en Hannes Hólmsteinn Gissuarson heldur því fram, að ójöfnuður hafi ekki aukist hér á landi.Þorvaldur Gylfason  skrifar grein um ójöfnuð í Fréttablaðið 1.mars.

Ójöfnuður hefur aukist hér um 40-71%

 

 Í ítarlegri grein,sem Stefán Ólafsson prófessor birtir í tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla haustið 2006 um aukningu ójafnaðar hér færir hann óyggjandi rök fyrir því , að ójöfnuður hafi aukist mun meira mér á landi en í grannlöndum okkar og raunar meira en í Bandaríkjunum, aðalríki auðvaldsskipulagsins. Stefán Ólafsson segir,að ójöfnuður hjá fjölskyldum hafi aukist um 40,7% á Íslandi á tímabilinu 1993-2005, þ.e. fyrir skatta. En eftir skatta hafi ójöfnuður á þessu tímabili aukist um 71,4%. Nú er mikið rætt um það hvort réttara sé að miða þessar tölur við tekjur með fjármagsntekjum eða  án þeirra.. Án fjármagntekna hefur ójöfnuður á umræddu tímabili aukist um 35,8% hér  á  landi. En með fjármagsntekjum hefur ójöfnuður aukist umn  74,8%. 35,8% aukning ójafnaðar er  mikið.

 Þjóðfélag misskiptingar og ójafnaðar 

Á tímabilinu 1979-2001 jókst ójöfnuður um 19,2% í Bandaríkjunum en á tímabilinu 1993-2005 jókst ójöfnuður hér á landi um  40%. Þessar staðreyndir staðfesta það sem haldið hefur verið fram, að Ísland stefnir hraðbyri að ástandinu eins og það er í Bandaríkjunum og fjarlægist velferðarkerfið á Norðurlöndum. Íslensk stjórnvöld hafa með aðgerðum í skattamálum og velferðarmálum skapað hér þjóðfélag misskiptingar og ójafnaðar og það er kominn tími til að  snúa við af þeirri braut.

 Björgvin Guðmundsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Talandi um ójöfnuð, þá fór ég t.d. í útibú Glitnis í gær og þar voru láglaunaðir gjaldkerar að býsnast yfir tugmilljónahagnaði bankastjóra síns. Ég held að fólki almennt ofbjóði græðgin í Bjarna Ármannsyni.

Stefán (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband