Launum (lífeyri) aldraðra og öryrkja haldið niðri! Fengu enga "jólagjöf" frá alþingi

Biskup segir,að lífeyrir aldraðra og öryrkja hafi setið eftir og ekki hækkað til jafns við önnur laun.Það er rétt: Launum (lífeyri) aldraðra og öryrkja hefur verið haldið niðri.

Í desember voru laun ráðherra,þingmanna,embættismanna og lífeyrisfólks  á mánuði,fyrir skatt sem hér segir:

Ráðherrar  2 milljónir 

Alþingismenn  1,1  milljón

Landlæknir,ríkislögreglustjóri 1,6 milljónir

Aldraðir og öryrkjar  212 þúsund  ( þeir,sem búa með öðrum.)

Alþingismenn fengu mikla kauphækkun á kjördag.Framangreindir embættismenn og fjöldi annarra embættismanna fengu kauphækkun á miðju ári með gildistíma 18 mánuði til baka!En aldraðir og öryrkjar eru ekki farnir að fá sina hækkun,sína hungurlús, enn.Fá hana ekki fyrr en um áramót.Hafa ekki fengið neina hækkun síðan um síðustu áramót en allar framangreindar stéttir hafa fengið hækkanir á árinu og verkafólk fékk hækkun í byrjun árs og á miðju ári.Hvers eiga aldraðir og öryrkjar að gjalda? Er ástæðan sú,að Bjarni og Eygló töldu,að þeir hefðu nóg,212 þúsund fyrir skatt og 185 þúsund kr á mánuði eftir skatt,sem hækka á um 10 þúsund rúmar um áramót.Hafa hungurlús í dag og verða með hungurlús eftir hækkun.-Ég sagði fyrir nokkrum dögum,að alþingi gæti tekið rögg á sig og leiðrétt kjör aldraðra og öryrkja fyrir jólin. En svo varð ekki.Það var til of mikils ætlast.Alþingi féll á því prófi.

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 23. desember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband