Hverjar eru kröfur aldraðra í dag?

 

Nú þegar stutt er til áramóta, nýtt alþingi hefur komið saman og  kjörtimabilið er að hefjast má segja, að kaflaskipti séu í kjaramálum aldraðra.Það er eðlilegt við slík  tímamót, að athugað sé hver aðal baráttumál aldraðra eigi að vera  á nýju tímabili.

Ég tel, að helstu baráttumál aldraðra eigi að vera þessi:

Lífeyrir aldraðra,sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingm, á að vera 400 þúsund kr á mánuði fyrir skatt.Það þýðir 320 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Hér er miðað við einhleypinga.Það vill svo til, að þessi upphæð er alveg samhljóða upphæð meðaltalsneyslu einhleypinga samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar en niðurstaða þeirrar könnunar var 321 þúsund kr á mánuði,án skatta.

Í könnun Hagstofunnar er könnuð meðaltalsneysla einhleypinga í landinu.Hagstofan kannar einnig meðaltalsneyslu heimila í landinu.Þegar velferðarráðuneytið kannaði dæmigert neysluviðmið fyrir nokkrum árum studdist ráðuneytið við neyslukönnun Hagstofunnar.

Eru 321 þúsund krónnur á mánuði of mikið til framfærslu fyrir aldraða? Nei, því fer víðs fjarri. Þessi upphæð er síst of há og í rauninni er erfitt að framfæra sig af lægri upphæð.Upphæðin,sem Tryggingastofnunn skammtar öldruðum í dag en hins vegar alltof lág, þ.e. 207 þúsund   kr á mánuði  hjá einhleypingum en sú upphæð á að hækka upp í 227 þúsund á mánuði  um áramót. Upphæðin hjá giftum og sambýlisfólki er hins vegar aðeins 185 þúsund kr í dag og mun hækka  í 195 þúsund um áramót.Þessi upphæð er furðulega lág og óskiljanlegt hvernig hún hefur ratað á blað.Hér er í öllum tilvikum rætt um upphæðir eftir skatt.

Ég hef bent á, að nýja upphæðin,sem koma á til framkvæmda um áramótin, er strax orðin úrelt.195 þús kr á mánuði dugar hvergi nærri til framfærslu.Og  hæpið er, að 227 þúsund á mánuði hjá einhleypingum dugi. Hér er alla vega svo naumt skammtað, að það er til  skammar. Og athugum, að hér er um nýja upphæð að ræða,  sem  á að vera betri en gamla upphæðin en framförin er sáralítil sem engin.

Við kaflaskipti í kjaramálum aldraðra þarf einnig að gera stórsókn til þess að „endurheimta“ lífeyri  lífeyrissjóðanna, sem daglega er óbeint verið að hrifsa af okkur með stófelldum skerðingum lífeyris almannatrygginga. Þessu verður að linna strax.Ég tel,að afnema verði skerðingarnar alveg, annað hvort í einu eða tvennu lagi.Það gengur ekki lengur, að þeir sem greitt hafa í lífeyrissjóð alla sína starfsævi, vakni upp við það á lífeyrisaldri, að ríkið taki óbeint af lífeyrissparnaðinum stórar fúlgur. 

 

Björgvin Guðmundsson

Fréttablaðið 30.desember 2016

 

 

 

 

 

 


Bloggfærslur 30. desember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband