Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?

 

 

Með því að stutt er til næstu þingkosninga er ástæða til þess að velta þvi fyrir sér hvaða stjórnmálaflokkar muni helst styðja kjaramál eldri borgara.Reynsla eldri borgara af stjórnmálaflokkunum er ekki góð. Núverandi stjórnarflokkar lofuðu öllu fögru, þegar kjaranefnd FEB í Reykjavík ræddi við þá fyrir síðustu þingkosningar. Þeir tóku meira að segja upp í ályktanir flokksþinga sinna stór stefnumál eldri borgara.En því miður hefur lítið orðið úr efndum. Ekki er enn búið að efna stærsta kosningaloforðið, sem gefið var eldri borgurum. Og aðeins lítill hluti annarra loforða, sem öldruðum og öryrkjum voru gefin, hafa verið efnd.Viðræður kjaranefndar við stjórnarflokkana í lok kjörtímabils árið 2013 báru heldur ekki mikinn árangur. 

Hreyfingin flutti frumvarp 

Eini flokkurinn á alþingi , sem varð við kalli kjaranefndarinnar 2013, var Hreyfingin. En Hreyfingin flutti,  að frumkvæði Margrétar Tryggvadóttur,alþingismanns, frumvarp um afturköllum þeirrar kjaraskerðingar, sem aldraðir og öryrkjar urðu fyrir 2009. Frumvarpið náði ekki fram að ganga. Auk þess flutti Ólöf Nordal alþingismaður Sjálfstæðisflokksins frumvarp um leiðréttingu á einu atriði kjaraskerðingarinnar frá 2009. Kjaranefndin ræddi einnig við flokka, sem voru utan þings. 

Styður afnám tekjutengingar 

Hvaða líkur eru á því, að stjórnnmálaflokkarnir taki kjaramálum eldri borgara betur nú? Ég hafði fyrir nokkru samband við Helga Hrafn Gunnarsson  kaptein Pírata og innti hann eftir því hvort hann eða flokkur hans væru reiðubúnir til þess að styðja kjaramál eldri borgara .Niðurstaða orðaskipta okkar var sú, að Helgi kvaðst geta stutt það baráttumál eldri borgara að afnema tekjutengingar aldraðra í kerfi almannatrygginga. Ég tel þetta gífurlega mikilvægan árangur.Stuðningur Helga Hrafns við afnám tekjutengingar aldraðra í almannatryggingum mundi að mínu mati þýða stuðning Pírata við málið. Eins og ég hef áður tekið fram lofaði Bjarni Benediktsson eldri borgurum því fyrir kosningarnar 2013 að afnema tekjutengingarnar.Ég tel víst, að Samfylkingin og Vinstri grænir mundu styðja þetta mál, þannig, að yfirgnæfandi líkur eru á, að þetta mál mundi ná fram að ganga. 

Mikilvægast að stórhækka lífeyrinn 

Helgi Hrafn var ekki reiðubúinn að úttala sig um aðrar kjarakröfur okkar. En af öðrum kjarakröfum er eitt mál mikilvægast: Stórhækkun lífeyris aldraðra og öryrkja frá almannatryggingum.Eins og ég hef  tekið fram í greinum mínum er  lífeyrir það lágur í dag, að þeir, sem verða að reiða sig á TR eingöngu,  geta ekki lifað af honum.Þess vegna verður að stórhækka lífeyrinn.Það er stærsta krafa eldri borgara í dag.Sama gildir um öryrkja.Það verður einnig að stórhækka lífeyri þeirra.

 

Björgvin Guðmundsson

viðskiptafræðingur

Fréttablaðið,5.mai 2016

www.gudmundsson.net

 

 

 


Bloggfærslur 5. maí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband