Aldraðir: "Eru þetta réttar upphæðir" !

Ég var að tala við blaðamann og segja honum hvað aldraðir og öryrkjar hefðu frá almannatryggingum til þess að lifa af,þ.e. þeir,sem eingöngu hafa tekjur frá TR.Einhleypir hafa 207 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.En þeir sem eru í hjónabandi,í sambúð eða búa með öðrum,jafnvel skyldmenni fá 185 þúsund á mánuði eftir skatt. Þegar blaðamaðurinn heyrði upphæðirnar sagði hann: Eru þetta réttar upphæðir? Hann trúði ekki sínum eigin eyrum. En þannig eru hinar köldu staðreyndir.Þessi hópur aldraðra og öryrkja á að lifa af 185-207 þúsund krónum á mánuði í veferðarþjóðfélaginu Íslandi,þar sem ráðherrar segja nær daglega,að nógir peningar séu til  og meira fjármagn hafi verið látið í velferð en nokkru sinni fyrr!Það eru alla vega nógir peningar til fyrir toppana í þjóðfélaginu,hvort sem þeir eru hjá hinu opinbera eða í einkageiranum. Æððstu embættismenn voru að fá hækkun í   1,6-1.7 milljón kr á mánuði og 32 milljónir í vasann! Ég er ekki hissa á því þó Styrmir Gunnarsson kalli þetta ógeðslegt þjóðfélag.

Hvað skyldu margir vita,að umræddir aldraðir og öryrkjar verði að lifa af 200 þús á mánuði? Ég hugsa,að þeir séu ekki margir.En ríkisstjórnin hreyfir ekki legg né lið til þess að laga þennan ósóma!

Björgvin Guðmundsson


Topparnir raka til sín peningum.Aldraðir og öryrkjar fá hungurlús." Ógeðslegt þjóðfélag"

 

 

 

Fyrir skömmu hækkuðu laun forstöðumanna ríkisstofnana,formanna ríkisnefnda og æðstu embættismanna stjórnarráðsins um allt að 48%. Hæstu launin fóru i  1,6-1,7 milljónir á mánuði.En ekki nóg með það.Hækkunin var látin gilda 19 mánuði til baka. Það þýddi,að þeir hæstlaunuðu fengu 30-32 milljónir greiddar í einu lagi sem launauppbót!

Á sama tíma og þetta gerðist voru ýmsir eldri borgarar og öryrkjar að fá  bréf frá Tryggingastofnun ríkisins,þar sem þeir voru rukkaðir um háar fjárhæði til baka, þar eð þeir hefðu fengið of mikið greitt í lífeyri í upphafi! Með öðrum orðum: Hungurlúsin,tæpar 200 þúsund krónur og rúmlega 200 þúsund á mánuði eftir skatt, reyndist of há! Það þurfti að klípa af þessum upphæðum. Og hvernig átti fólkið að borga það til baka? Því er ósvarað. Þetta hvort hvegga gerðist um svipað leyti. Misskiptingin i þjóðélaginu kristallaðist í þessu tvennu, himinháum greiðslum til forstöðumanna og æðsu embættismanna  og kröfur á aldraða og öryrkja um að greiða til baka. Mér  komu þá í hug orð Styrmis Gunnarssonar  fyrrverandi  ritstjóra: Þetta er ógeðslegt þjóðfélag. Mér þóttu þessi orð fráleit í fyrstu. En ég held ég taki undir þau í dag.

Styrmir sagði við Rannsóknarnefnd alþingis: „Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár.Þetta er ógeðslegt þjóðfélag. Þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp,það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt.Það er bara tækifærismennska,valdabarátta.“

 

Björgvin Guðmundsson

www.gudmundsson.net

 


Bloggfærslur 22. júlí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband