Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Fimmtudagur, 19. apríl 2007
Kjósendur refsa Framsókn
Kjósendur refsa Framsókn
Nýjar skoðanakannanir um fylgi flokkanna birtast nú ört. Í gær birti Stöð 2 nýja könnun um fylgi flokkanna í Kraganum. Það,sem vakti athygli við þá könnun, var það, að fylgið hrindi af Framsókn eins og raunar einnig hafði gerst í Suðurkjördæmi og Norðausturkjördæmi. Í Kraganum fékk Framsókn engan þingmann kjörinn og Sif Friðleifsdóttir komst ekki inn. Hvað er að gerast? Jú,kjósendur ætla að refsa Framsókn fyrir langa íhaldsþjónkun. Í síðustu kosningum 2003 töpuðu báðir stjórnarflokkarnir fylgi en þó íhaldið miklu meira. Það hrundi í 33%. En Íhaldið og Framsókn gáfu kjósendum langt nef 2003 og ákváðu að hanga í valdastólunum þrátt fyrir kosningaúrslitin.Og Framsókn ákvað að styðja íhaldið áfram út á það að fá forsætisráðherrann í stuttan tíma. Þetta var algerlega siðlaust og brot á lýðræðisreglum. Kjósendur eru nú að refsa Framsókn.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 19. apríl 2007
Samfylkingin vill bæta velferðarkerfið
Í alþingiskosningunum í næsta mánuði verður kosið um velferðarkerfið. Stjórnarflokkarnir,Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, hafa stórskaðað velferðarkerfið á 12 ára valdatímbili.Þegar almannatryggingar komust á hér á landi 1946 fyrir tilstuðlan Alþýðuflokksins var Ísland í fremstu röð í heiminum að því, er velferðarkerfi varðaði. En í dag hefur Ísland dregist aftur úr öðrum þjóðum í þessum efnum og er með versta velferðarkerfið á Norðurlöndum.Ójöfnuður hefur stóraukist hér á landi síðustu 12 árin. Samfylkingin vill bæta velferðarkerfið og auka jöfnuð á ný í þjóðfélaginu. Kjör aldraðra verði stórbætt Samfylkingin vill stórbæta kjör aldraðra. Undir forustu Jóhönnu Sigurðardóttur og Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur hefur Samfylkingin flutt á þingi margar tillögur um bætt kjör aldraðra, um afkomutryggingu aldraðra og um nýskipan í lífeyrismálum aldraðra. Þessar tillögur gera ráð fyrir, að lífeyrir aldraðra verði strax stórhækkaður, dregið verði verulega úr tekjutengingum og eldri borgurum heimilað að vinna fyrir 100 þúsund krónum á mánuði án þess að það skerði lífeyri frá almannatryggingum.Framvegis hækki lífeyrir aldraðra síðan í samræmi við hækkun á framfærslukostnaði samkvæmt könnun Hagstofu Íslands. Í dag eru neysluútgjöld einstaklinga krónur 210 þúsund á mánuði samkvæmt athugun Hagstofu Íslands. Þá vill Samfylkingin gera stórátak í vistunar-og hjúkrunarmálum aldraðra.400 manns eru nú á biðlista eftir hjúkrunarrými. Samfylkingin vill leysa vanda þessa fólks strax. Stór hópur aldraðra verður að búa við margbýli á sjúkrastofum.Allir eldri borgarar eiga að vera á einbýlisstofum,nema þeir búi með maka sínum. Unga Ísland Jafnframt átaki í málefnum aldraðra vill Samfylkingin stórbæta aðstöðu barna. Samfylkingin hefur birt nýja stefnuskrá í málefnum barna, Unga Ísland. Þar er gert ráð fyrir, að dregið verði úr tekjutengingum barnabóta, að tannvernd barna verði aukin með ókeypis eftirliti og forvarnaraðgerðum og auknum niðurgreiðslum á tannviðgerðum barna. Námsbækur í framhaldsskólum verði nemendum að kostnaðalausu. Velferðarkerfið er mikilvægasta málið í væntanlegum kosningum.Samfylkingin setur það mál í forgang. Ýmis önnur mál skipta miklu máli svo sem atvinnumálin og umhverfismálin. Samfylkingin er einnig með skýra stefnu í þeim málaflokkum. Samfylkingin vill endurskoða kvótakerfið og binda endi á brask með kvóta. Það á að setja ákvæði um það í stjórnarskrá að mikilvægasta auðlind okkar, fiskurinn í sjónum, sé sameign íslensku þjóðarinnar. Og það á enginn að geta braskað með þessa auðlind okkar. Björgvin Guðmundsson |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 18. apríl 2007
Lífeyrir lægri hér en í OECD ríkjum
Það er verið að eyðileggja lífeyriskerfi landsmanna.Ríkið tekur hátt í 70% af lífeyrinum í skatta og skerðingar.Árið 2004 voru meðaltekjur lífeyrisþega frá lífeyrissjóðum um 58.000 krónur á mánuði. Helmingur lífeyrisþega var með minna en 35.000 krónur á mánuði í lífeyri. Ef lagður er saman lífeyrir lífeyrisþega frá almannatryggingum og lífeyrissjóðum kemur í ljós,að meðaltekjur lífeyrisþega heild eru 154 þúsund krónur á mánuði.Allur lífeyrir, hvort sem er frá lífeyrissjóði eða almannatryggingum, er skattlagður eins og um atvinnutekjur sé að ræða. Lífeyrir frá almannatryggingum er skertur vegna atvinnutekna,sem fara yfir 25 þúsund á mánuði og hann er skertur vegna lífeyrissjóðstekna.Aðeins grunnlífeyrir skerðist ekki vegna tekna úr lífeyrissjóði.Meira að segja lífeyrir frá almannatryggingum sætir skerðingu vegna lífeyris maka úr lífeyrissjóði en sú skerðing er að mínu mati brot á stjórnarskránni. Miklar skerðingar og skattar eru að eyðileggja lífeyriskerfið.
Ávinningur af lífeyrissjóðunum takmarkaður!
. Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir var reiknað með því, að lífeyrir úr þeim yrði alger viðbót fyrir lífeyrisþega.Lífeyrir úr lífeyrissjóði átti ekki að skerða lífeyri frá almannatryggingum. En það hefur farið á annan veg. Ávinningur af lífeyrissjóðunum er mjög takmarkaður vegna skerðinga og skatta ríkisvaldsins.
Ef lífeyrir Íslendinga er borinn saman við lífeyri í OECD löndum kemur í ljós,að hann er lægri hér en sem nemur meðtaltalinu í OECD löndum. Lífeyrir, sem hlutfall af meðallaunum, er 66% hér á landi en 69% hjá OECD. Ef litið er á hlutfall af verkamannalaunum kemur í ljós,að lífeyrir hér er 57% af verkamannalaunum en 59% af verkamannalaunum hjá OECD.
Skerðingar mikið meiri hér en annars staðar
Miklar skerðingar á lífeyri aldraðra þekkjast ekki í nágrannalöndum okkar. Þetta er einstakt fyrir Ísland. Það mætti halda, að Ísland væri fátækt land, sem þyrfti af þeim sökum að íþyngja eldri borgurum.
Í Svíþjóð halda ellilífeyrisþegar öllum sínum bótum óskertum þrátt fyrir aðrar tekjur. Og í Danmörku mega þeir hafa 50 þúsund króna atvinnutekjur án þess að sæta skerðingu. Skerðing verður þar aldrei meiri en 30%. Engin skerðing verður þar vegna greiðslna úr lífeyrissjóði, ekki heldur hjá maka. 70% ellilífeyrisþega í Danmörku eru með fullar og óskertar bætur. Í Svíþjóð er hlutfallið 100%.Engin skerðing sem fyrr segir.
Aðeins 1% ellilífeyrisþega fær fullar bætur á Íslandi
En á Íslandi fær aðeins 1% ellilífeyrisþega fullar og óskertar bætur.Þannig fer ein ríkasta þjóð heims með eldri borgarana í sínu landi.
Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður Samfylkingarinnar sýnir fram á það í grein í Mbl. í dag, að það sem Geir H..Haarde var að bjóða lífeyrisþegum á landsfundi íhaldsins var alger hungurlús. Það verður sáralítið eftir þegar ríkið hefur hirt meirihlutann í skatta og skerðingar.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
Samfylkingin of lin við íhaldið
Ýmsir velta því fyrir sér hvers vegna Samfylkingin fái minna í skoðanakönnunum nú en
fyrir 4 árum.Að mínu mati eru tvær skýringar á þessu: 1) Vegna bylgjunnar í umhverfismálum, sem riðið hefur yfir landið. VG hefur grætt á henni. 2) Vegna þess,að Samfylkingin hefur farið mjúkum höndum um Sjálfstæðisflokkinn í þessari kosningabaráttu.
Í kosningabaráttunni fyrir kosningarnar 2003 gagnrýndi Samfylkingin íhaldið harðlega, m.a. fyrir valdníðslu og misbeitingu valds og misskiptinguna í þjóðfélaginu. Samfylkingin rak þá harða kosningabaráttu gegn íhaldinu og það fór ekki framhjá neinum, að Samfylkingin var höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins.Það var þá mikið talað um turnana tvo í pólitíkinni,Samfylkinguna og íhaldið. Nú hafa mál þróast þannig, að margir líta á VG, sem aðalandstæðing Sjálfstæðisflokksins.Samfylkingin hefur ekki notið góðs af bylgunni í umhverfismálum. Þó hefur flokkurinn breytti stefnu sinni í umhverfismálum og lagt fram nýja og mjög skynsamlega stefnu í þeim málum,Fagra Ísland. Leiðin til þess að stórauka fylgi Samfylkingarinnar nú er að kynna betur Fagra Ísland og auka verulega gagnrýni á Sjálfstæðisflokkinn. Þar er af nógu að taka. Það hefur ekkert breytst varðandi Sjálfstæðisflokkinn á þeim 4 árum sem liðin eru frá síðustu kosningum. Valdníðsla og misbeiting valds hefur haldið áfram. Ójöfnuður og misskipting í þjóðfélaginu hefur aukist áfram. Velferðarkerfið hefur drabbast niður. Aldraðir og öryrkjar eru afskiptir og hafa verið sviknir um kjarabætur, sem þeim var lofað. Íhaldið er nú korteri fyrir kosningar að sletta einhverri hungurlús í eldri borgara. Tillögur Samfylkingarinnar um endurbætur í þágu aldraðra og öryrkja og í þágu barna eru þær róttækustu sem nú hafa komið fram.
Björgvin GuðmundssonÞriðjudagur, 17. apríl 2007
Djúpt á umbótum hjá Tryggingastofnun
Alþingismenn hafa verið að berjast fyrir því, að eldri borgarar þyrftu ekki að safna saman reikningum vegna lækniskostnaðar í því skyni að fá afsláttarkort heldur mundu sjúkrastofnanair senda reikningana beint til Tryggingastofnunar og eldri borgarar fá afsláttarkortin send án þess ap fara í stofnunina. Um síðustu áramót virtist vera að rofa til í þessum efnum og barátta alþingismanna í þessu efni að bera árangur. Þá tilkynnti Tryggingastofnun, að eldri borgarar mundu fá afsláttarkortin send framvegis þegar þeir hefðu greitt lækniskostnað að fjárhæð 4500 kr. og þeir þyrftu ekki að fara í Tryggingastofnun. En ekkert hefur gerst í þessum efnum enn. Það eina sem hefur gerst er, að nú er ástandið í þessum efnum orðið verra en áður. Eldri borgarar fengu asfláttarkortið afhent áður um leið og þeir framvísuðu reikningum í Tryggingastofnun. Nú verða þeir að fara með reikningana í stofnunina en fá ekkert afsláttarkort afhent! Þeim er sat að leggja reikningana inn en síðan fái þeir afsláttarkortið afhent einhvern tímann síðar. Mö.o: Ástandið hefur versnað í þessum efnum en ekki batnað. Það er djúpt á umbótum hjá Tryggingastofnun.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 17. apríl 2007
Góð stefna að auka aðstoð við fátækar þjóðir
Valgerður Sverrisdóttir,utanríkisráðherra, hefur beitt sér fyrir aukinni þróunarsamvinnu og meiri aðstoð en áður við fátækar þjóðir.Þetta er þakkarvert. Ég er ánægður með þessa stefnu hennar. Það er ekki oft sem ég sé ástæðu til þess að þakka ráðherrum Framsóknar. Oftast hefi ég sér ástæðu til þess að gagnrýna þá og mesta gagnrýnisefnið er, að Framsókn skuli hafa viðhaldið völdum íhaldsins í 12 ár. Framsókn hefur gleymt kjörorði Tryggva Þórhallssonar og Hermanns Jónassonar: Allt er betra en íhaldið.
Björgvin Guðmundsson
Mánudagur, 16. apríl 2007
Íhaldið vill halda einkavinavæðingu áfram
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins var samþykkt að undirbúa einkavæðingu Landsvirkjunar. Það mátti heyra á Geir H. Haarde í Silfri Egils, að hann var ekki sannfærður um að einkavæða ætti Landsvirkjun en samt hefur það orðið ofan á á Landsfundi. Hægri menn hafa orðið ofan á og hægri stefna mótar stefnu landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Hvað þýðir það að íhaldið vilji einkavæða Landsvirkjun. Það þýðir það, að Landvirkjun verði afhent einkavinum Sjálfstæðisflokksins á silfurfati til þess að braska með þetta góða fyrirtæki og græða á því. Bankarnir voru afhentir einkavinum á þann hátt og látnir á útsöluverði og hafa eigendur síðan makað krókinn og grætt vel. Hið sama vilja íhaldsmenn nú gera við Landsvirkjun: Láta einkaaðila braska með fyrirtækið, jafnvel liða það í sundur og græða á því. Notendur orku mundu fljótlega finna fyrir því í hækkuðu orkuverði. Það kemur ekki til greina að mínu mati að einkavæða Landsvirkjun. Það má ákveða að reka fyrirtækið sem félag með takmarkaðri ábyrgð eins og hlutafélag en það á áfram að vera í eigu almennings, hins opinbera. Þetta er of mikilvægt fyrirtæki til þess að það verði afhent einkavinum Sjálfstæðisflokksins.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti að sletta hungurlús í aldraða. Það á að lækka skerðingu tryggingabóta úr 40% í 35%. Þetta er alger hungurlús. Það á að afnema skerðingar með öllu eins og Svíar hafa gert. Erum við ekki svo ríkir Íslendingar? Íhaldið ætlar greinilega að halda áfram á sömu braut og áður, sbr. samkomulagið við Landssamband eldri borgara: Að sletta einhverju lítilræði í eldri borgara hverju sinni, svona eins og að setja snuð upp í þá.Eldri borgarar sætta sig ekki við slíkt. Þeir vilja fá fullnægjandi lausn á sínum málum: Stórhækkun lífeyris sem nægi fyrir framfærslukosntaði samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar. Það er sanngjarnt. Og þeir vilja afnám á skerðingu tryggingabóta vegna tekna úr lífeyrissjóði og atvinnutekna og afnám á skerðingu vegna tekna maka enda er slík skerðing brot á stjórnarskránni.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti að afnema ætti málsskotsrétt forseta Íslands. Það er ljóst, að andi Davíðs svífur enn yfir vötnunum hjá íhaldinu. Það er einmitt nauðsynlegt að forsetinn hafi áfram málskotsréttinn. Það er nauðsynlegur öryggisventill fyrir lýðræðið í landinu.
Björgvin GuðmundssonStjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 16. apríl 2007
Áróður Mbl. gegn Samfylkingunni heldur áfram
Í forustugrein Morgunblaðsins í dag segir svo:Hin nýja forysta Sjálfstæðisflokksins kemur sterk frá sínum landsfundi. Og síðan segir: Það er meiri órói meðal Samfylkingarfólks.
Þessi skrif kom í kjölfar mikils níðs um Samfylkinguna í Reykjavíkurbréfi á sunnudag en bréfið var allt lagt undir árás á Samfylkinguna um leið og Vinstri grænir voru hafnir til skýjanna.
Landsfundur Samfylkingarinnar var gífurlega sterkur og sýndi geysilegan styrk Ingibjargar Sólrúnar.Ekkert kom fram á fundinum, sem gefur Mbl. tilefni til þess að tala um óróa meðal Samfylkingarfólks.Þar var mikil samstaða og mjög málefnaleg og góð umræða um öll hin mikilvægu mál. En það er engu líkara en það hafi verið ákveðið í Valhöll ( virðist gilda fyrir Mbl.) að klifa stöðugt á því að sundrung ríki í Samfylkingunni jafnframt því, sem áróður sé rekinn gegn Ingibjörgu Sólrúnu.
Hvers vegna hefur íhaldið lagt þessa línu gegn Samfylkingunni? Það er vegna þess að það er ekki búið að jafna sig enn á því að R-listinn undir forustu Ingibjargar Sólrúnar skyldi fella íhaldið þrisvar í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Og það er vegna þess,að Samfylkingin gagnrýndi sjálft goðið, Davíð Oddsson, harðlega í síðustu kosningum og vann stórsigur, fékk 31% atkvæða á meðan Sjálfstæðiflokkurinn hrapaði í 33%.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. apríl 2007
Sjálfstæðisflokkurinn var í fyrstu á móti EES
Aðild Íslands að EES færði okkur frelsið í efnahagsmálum,sem allir dásama í dag. EES-samningurinn færði okkur frelsin fjögur,frelsi í vöruviðskiptum,þjónustuviðskiptum,fjármagnaflutningum og vinnuaflsflutningum.
Björgvin Guðmundsson
Sunnudagur, 15. apríl 2007
Morgunblaðið ræðst á Samfylkinguna
Morgunblaðið tekur í Reykjavíkurbréfi í dag til við fyrri iðju og ræðst á Samfylkinguna um leið og blaðið hælir Vinstri grænum á hvert reipi.Segir blaðið nú, að Vinstri grænir hafi yfirgefið vinstri stefnu og séu nú einungis góður umhverfisflokkur. Er ljóst hvert blaðið stefnir með þessum málflutningi: Að búa sjálfstæðismenn undir að samþykkja Vinstri græna sem samstarfsaðila, ef Framsóknarhækjan brestur eins og allt bendir til og finna þarf nýja hækju fyrir Sjálfstæðisflokkinn við stjórnarmyndun.Síðan kemur Mbl. með alls konar sleggjudóma og slúður um Samfylkinguna svo sem, að Samfylkinguna skorti málefnalega sannfæringu og að ágreiningur sé í forustu Samfylkingarinnar.Þetta er áróður sem er búinn til í Valhöll og á Mbl. en enginn fótur er fyrir. Samkomulag er mjög gott í Samfylkingunni.Það er áreiðanlega betra en í Sjálfstæðisflokknum enda muna menn að gerður var aðsúgur að Birni Bjarnasyni ráðherra í prófkjörinu vegna þingkosninganna og frá því að Davíð Oddsson lét af formennsku hefur arftakinn verið að hreinsa stuðningsmenn Davíðs burt úr áhrifastöðum í flokknum svo sem fyrrum framkvæmdastjóra, Kjartan Gunnarsson.Hann var látinn fara.Samfylkinguna skortir ekki málefnalega sannfæringu og það er ósmekklegt og beinlínis rangt hjá Mbl. að halda því fram, að Samfylkingin hafi ekki barist fyrir jöfnuði, eins og blaðið segir. Það gengur eins og rauður þráður gegnum öll stefnumál Samfylkingarinnar að berjast eigi gegn ójöfnuði og misskiptingu og stuðla að jöfnuði í þjóðfélaginu. Barátta fyrir jöfnuði var stórt atriði í ræðu Ingibjargar Sólrúnar á landsfundi Samfylkingarinnar.
Reykjavíkurbréf vitnar í ritdóm Jóns Baldvins um bók Steingríms J.Sigfússonar í Mbl. en þar segir Jón, að ef kosningaúrslitin verði eins og skoðanakannanir hafi sameining jafnaðarmanna mistekist. Reykjavíkurbréfið breytir ummælum Jóns Baldsins á þann veg, að hann hafi sagt, að sameining jafnaðarmanna hafi þegar mistekist eins og búið væri að kjósa.Síðan spinnur Reykjavíkurbréfið langan vef byggðan á hinum breyttu ummælum.Í hugskoti höfundar Reykjavíkurbréfsins leysist Samfylkingin upp og Alþýðuflokkurinn endurlífgast og ýmsar aðrar hræringar verða í pólitíkinni, allar í samræmi við óskhyggju Reykjavíkurbréfsins.
Stjórnmálaflokkar hafa oft orðið fyrir ágjöfum og rétt sig síðan við á ný. Alþýðuflokkurinn varð fyrir mörgum áföllum en forustumenn flokksins lögðu aldrei árar í bát. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einnig orðið fyrir miklum áföllum, síðast í þingkosningunum 2003, er fylgi flokksins hrapaði í 33 % vegna sóknar Samfylkingarinnar, sem þá fékk 31%. Sjálfstæðisflokkurinn varð fyrir miklu áfalli þegar Borgaraflokkurinn var stofnaður og fylgið fór þá talvert niður fyrir 30% í þingkosningum..
Nú er verið að leggja út af skoðanakönnunum en ekki kosningaúrslitum..Enginn veit enn hvað Samfylkingin fær mikið fylgi í næstu þingkosningum. Hún getur stórbætt stöðu sína enn. Enginn flokkur hefur undirbúið sig eins vel málefnalega og Samfylkingin. Hún hefur mótað skýra stefnu í öllum helstu málaflokkum, nú síðast í efnahagsmálum með vandaðri vinnu. Áður hafði flokkurinn lagt mikla vinnu í nýja stefnu í umhverfismálum svo og varðandi málefni barna. Ég hefi þá trú,að þegar kjósendur kynnast stefnu Samfylkingarinnar í þessum málum og varðandi endurreisn velferðarkerfisins muni þeir snúa sér í ríkum mæli að Samfylkingunni sem málsvara jafnaðarstefnunnar á Íslandi. .
Björgvin Guðmundsson