Þriðjudagur, 10. apríl 2007
Ingibjörg Sólrún felldi íhaldið í Rvk. þrisvar
Ýmsir velta því fyrir sér hvers vegna ungir sjálfstæðismenn og hægri íhaldsmenn haldi uppi hörðum árásum á Ingibjörgu Sólrúnu,leiðtoga Samfylkingarinnar.En skýringarinnar er ekki langt að leita. Ingibjörg Sólrún var leiðtogi R-listans, sem felldi Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík í þrennum borgarstjórnarkosningum. Þetta var gífurlegt áfall fyrir íhaldið. Og öfgasinnaðir íhaldsmenn hafa aldrei getað fyrirgefið Ingibjörgu Sólrúnu þetta. Þessum íhaldsmönnum finnst sem Ingibjörg Sólrún hafi niðurlægt íhaldið í Reykjavík.
Þegar Ingibjörg Sólrún fór síðan í landsmálabaráttuna fyrir 4 árum réðist hún beint að sjálfu goðinu,Davíð Oddssyni. Það þótti íhaldsmönnum einnig ófyrirgefanlegt. Fyrir kosningarnar 2003 mældist Ingibjörg Sólrún með mjög meiri vinsældir en sjálfur Davíð eða með 10 prósentustiga meira fylgi. Það var þá sem ákveðið var í Valhöll að hefja ófræðingarherferð og stanslausar árásir á Ingibjörgu Sólrúnu. Sú barátta hefur staðið síðan og Morgunblaðið hefur hjálpað vel til. Samfylkingarmenn þjappa sér nú saman um Ingibjörgu Sólrúnu og eru staðráðnir í því að hrinda árásum íhaldsins á hana.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.