Misrétti og launamismunur eykst!

 

Fyrir einu ári fengu ráðherrar stórfellda launahækkun  og 9 mánaða hækkun til baka,sem gerði tæplega einnar milljón króna afturvirka launahækkun.Einnig fengu þá alþingismenn miklar launahækkanir og afturvirkar til baka frá 1.mars 2015.En þrátt fyrir þessar miklu launahækkanir er nú verið að veita  ráðherrum nýjar miklar launahækkanir.Laun ráðherra hækka nú í 1826 þúsund krónur á mánuði eða um hálfa milljón eða um 44%. Laun alþingismanna hækka einnig um 44% og verða 1101 þúsund kr á  mánuði. Misréttið í launamálum heldur því áfram og launaójöfnuður eykst. Á sama tíma og þetta gerist var verið að skammta  kvæntum öldruðum 10 þúsund kr hækkun á mánuði frá næstu áramótum og  20 þúsund kr hækkun til einhleypra aldraðra frá sama tíma.Þetta sýnir í hnotskurn gífurlegt misrétti.Ráðherrar moka til sín fjármunum en skammta á sama tíma lífeyrisþegum algera hungurlús. Einhleypur eldri borgari á að fá  195 þús kr á mánuði eftir skatt (hefur ekki lífeyrissjóð) frá áramótum en ráðherrar eiga að fá rúmar 2 milljónir á mánuði.

Kjararáð hefur hækkað þingfararkaup alþingismanna um tæp 45 prósent eða sem nemur 338.254 krónum á mánuði. Samkvæmt síðustu launaskrá var mánaðarlegt þingfararkaup alþingismanna 762.940 krónur en er nú 1.101.194 krónur.

 Mánaðarkaup forsætisráðherra að meðtöldu þingfararkaupi verður 2.021.828 krónur.
Laun forseta Íslands hækka einnig umtalsvert, eða um 20 prósent. Samkvæmt úrskurði kjararáðs verða mánaðarlaun forseta Íslands nú tæpar þrjár milljónir.

Þetta sýnir,að það eru nógir peningar til þegar hækka þarf laun þingmanna,ráðherra og forseta en öðru máli gegnir þegar hækka þarf lífeyri  aldraðra og  öryrkja; þá eru aldrei til neinir peningar!!

 

Björgvin Guðmundsson

 


Frambjóðendur vildu bæta kjör aldraðra og öryrkja meira!

 

Í kosningabaráttunni fyrir nýafstaðanar alþingiskosningar sögðu nær allir frambjóðendur að bæta þyrfti kjör aldraðra og öryrkja.Það var óvenjumikið rætt um þessi málefni; frambjóðendur gerðu sér ljóst,að gera þyrfti betur í málefnum aldraðra og öryrkja. Helst voru það talsmenn Sjálfstæðisflokksins,sem ekki ræddu nauðsyn frekari aðgerða fyrir þennan hóp en jafnvel Framsóknarmenn ræddu nauðysn frekari  ráðstafana fyrir aldraðra og öryrkja.

Ekki hefur  verið mynduð ný ríkisstjórn enn.En forseti Íslands hefur þegar hafið  viðræður við formenn stjórnmálaflokkanna,sem  eiga fulltrúa á  alþingi til undirbúnings stjórnarmyndun.Það þarf að vera eitt fyrsta verk nýs alþingis og nýrrar ríkisstjórnar að bæta kjör aldraðra og öryrkja meira en ný lög um almannartryggingar gera ráð fyrir.Einkum er staða þeirra lífeyrisþega,sem einungis fá lífeyri frá almannatryggingum óásættanleg ( eins og hún á að verða um áramót). Eldri borgarar í sambúð og hjónabandi eiga að fá 195 þúsund krónur á mánuði eftir skatt og einhleypir að fá 227 þúsund kr á mánuði.Þessar  upphæðir eru svo lágar,að engin leið er að lifa af þeim.Þar veldur miklu mikill húsnæðiskostnaður. Þessar upphæðir verða því að hækka verulega. Einnig þarf að draga meira úr skerðingu lífeyris TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði og vegna tekna af atvinnu og fjármagni.Ný lög  gera ráð fyrir að draga úr skerðingum en hvergi nærri nóg. Stefna á að því að draga enn frekar úr skerðingum.Afnema á sem fyrst skerðingar lífeyris TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði, þar eð eldri borgarar,sjóðfélagar, eiga lífeyrinn í lífeyrissjóðunum.Það á ekki að skerða lífeyri almannatrygginga neitt vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 1. nóvember 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband