Misrétti og launamismunur eykst!

 

Fyrir einu ári fengu ráðherrar stórfellda launahækkun  og 9 mánaða hækkun til baka,sem gerði tæplega einnar milljón króna afturvirka launahækkun.Einnig fengu þá alþingismenn miklar launahækkanir og afturvirkar til baka frá 1.mars 2015.En þrátt fyrir þessar miklu launahækkanir er nú verið að veita  ráðherrum nýjar miklar launahækkanir.Laun ráðherra hækka nú í 1826 þúsund krónur á mánuði eða um hálfa milljón eða um 44%. Laun alþingismanna hækka einnig um 44% og verða 1101 þúsund kr á  mánuði. Misréttið í launamálum heldur því áfram og launaójöfnuður eykst. Á sama tíma og þetta gerist var verið að skammta  kvæntum öldruðum 10 þúsund kr hækkun á mánuði frá næstu áramótum og  20 þúsund kr hækkun til einhleypra aldraðra frá sama tíma.Þetta sýnir í hnotskurn gífurlegt misrétti.Ráðherrar moka til sín fjármunum en skammta á sama tíma lífeyrisþegum algera hungurlús. Einhleypur eldri borgari á að fá  195 þús kr á mánuði eftir skatt (hefur ekki lífeyrissjóð) frá áramótum en ráðherrar eiga að fá rúmar 2 milljónir á mánuði.

Kjararáð hefur hækkað þingfararkaup alþingismanna um tæp 45 prósent eða sem nemur 338.254 krónum á mánuði. Samkvæmt síðustu launaskrá var mánaðarlegt þingfararkaup alþingismanna 762.940 krónur en er nú 1.101.194 krónur.

 Mánaðarkaup forsætisráðherra að meðtöldu þingfararkaupi verður 2.021.828 krónur.
Laun forseta Íslands hækka einnig umtalsvert, eða um 20 prósent. Samkvæmt úrskurði kjararáðs verða mánaðarlaun forseta Íslands nú tæpar þrjár milljónir.

Þetta sýnir,að það eru nógir peningar til þegar hækka þarf laun þingmanna,ráðherra og forseta en öðru máli gegnir þegar hækka þarf lífeyri  aldraðra og  öryrkja; þá eru aldrei til neinir peningar!!

 

Björgvin Guðmundsson

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband