Lífeyrir aðeins 94,5% af lágmarkslaunum!

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra er að birta einhverjar tölur um að aldraðir og öryrkjar og aðrir hjá TR hafi fengið meira frá ríkinu en nokkru sinni fyrr!Þetta er í stíl við það, sem Sigmundur Davíð sagði,þegar hann sagði,að lífeyrir Tryggingastofnunar væri orðinn heimsmet,hann væri svo hár.

Þessi talnaleikfimi á að sannfæra aldraða og öryrkja um að 185 þús-207 þúsund á mánuði eftir skatt sé nóg og meira en nokkru sinni fyrr!

Það skiptir engu máli hvað greiðslur almannatrygginga hækka mikið í milljónum. Hið eina sem skiptir máli er hvað fæst fyrir peningana og hvort það sé nóg og mannsæmandi til framfærslu.Einnig skiptir máli að lífeyrir hækki i samræmi við lög og ekki minna en lágmarkslaun. Staðtölur Tryggingastofnunar leiða í ljós,að svo er ekki: Síðasta ár námu  greiðslur TR til einhleypra ellilífeyrisþega með eingreiðslum 94,5% af lágmarkslaunum,þ.e. voru langt undir lágmarkslaunum.Þetta var langt undir því sem var á kreppuárunum,þegar þjóðin var að verða gjaldþrota en árið 2010 nam lífeyrir einhleypra ellilífeyrisþega 115 % af lágmarkslaunum eða langt yfir þeim.Tölur fyrir 2016 eru ekki tilbúnar.

Tölur um heildarútgjöld TR skipta engu máli i þessu sambandi.Inni í þeim eru atvinnuleysisbætur,slysabætur, sjúkrabætur,umönnunargreiðslur og alls konar liðir sem ekki koma lífeyri aldraðra og öryrkja neitt við. Tölurnar eru birtar til þess að villa um fyrir fólki.

Stjórnvöldum væri nær að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja myndarlega svo hann dygði til framfærslu.

Björgvin Guðmundsson

 


Loforðin við aldraða og öryrkja: Síðasta tækifæri stjórnmálamanna!

Eftir nokkra daga verður nýr forseti Íslands settur í embætti,Guðni Th.Jóhannesson.Það er merkur atburður. Eftir rúmar 3 vikur kemur alþingi saman og 2 mánuðum síðar verða þingkosningar.

Hvernig munu þessir atburðir geta snert aldraða og öryrkja? Lítum á það: Ég hef bent á það,að þegar alþingi kemur saman um miðjan ágúst þá eru síðustu forvöð fyrir alþingismenn ríkisstjórnarinnar að standa við stóru kosningaloforðin,sem þeir gáfu öldruðum og öryrkjum fyrir kosningarnar 2013.Þeir eiga eftir að efna 99% af þessum kosningaloforðum.Þeim gefst nú síðasta tækifærið til þess að efna kosningaloforðin við aldraða og öryrkja.Loforðin voru stór og ekki hvað síst loforðin,sem Bjarni Benediktsson gaf um að afnema allar tekjutengingar ellilífeyrisþega hjá TR.Hann getur efnt þetta loforð í næsta mánuði. Geri hann það ekki þýðir ekkert fyrir hann að bjóða sig fram á ný.

Stjórnmálanenn eru byrjaðir að gefa ný loforð. Það þýðir ekkert.Fyrst verða þeir að efna gömlu kosningaloforðin.

Bregðist stjórnmálamenn öldruðum og öryrkjum eina ferðina enn eiga aldraðir og öryrkjar ekki annað úrræði en að snúa sér til nýs forseta Íslands og biðja hann um að beita sér fyrir því að lífeyrir verði hækkaður svo unnt verði að lifa af honum.

 

Björgvin Guðmundsson


Bloggfærslur 21. júlí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband