Dagar Brown sem leiðtoga Verkamannaflokksins sennilega taldir

Enn er ekki ljóst hvernig fer með stjórnarmyndun í Bretlandi.Trúlegast er þó að mynduð verði stjórn Íhaldsflokksins og frjálslyndra en þó er það ekki öruyggt.Íhaldsflokkurinn vill  ekki samþykkja þær breytingar á kjördæmaskipan sem frjálslyndir fara fram á. Íhaldsmenn vilja skipa nefnd um málið en slæm reynsla er af því. Annað mál,sem veldur ágreiningi milli flokkanna er Evrópumálin.Íhaldsmenn draga  lappirnar í þeim málum og vilja jafnvel stíga skref til baka í Evrópumálum. Frjálslyndir eru hins vegar Evrópusinnar.Ef viðræður Íhaldsflokksins og frjálslyndra springa tekur Verkamannaflokkurinn við og reynir að semja við  frjálslynda.Verkamannaflokkurinn vill  gera breytingar á kjördæmaskipaninni og leggja málið undir þjóðaratkvæði. Báðir flokkarni eru Evrópuflokkar. En ekki er víst að  frjálslyndir samþykki Brown sem forsætisráðherra.Hann verður því ef til vill að stíga til hliðar og hleypa öðrum að. Brown er orðinn mjög óvinsæll eins og nýleg skoðanakönnun sýnir. Hann fór með Verkamannaflokkinn of langt til hægri.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband