Mótmælastaða við stjórnarráðið í dag

Boðað hefur verið til þögullar mótmælastöðu fyrir utan stjórnarráðið í dag klukkan hálf tólf, á meðan ríkisstjórnarfundur stendur yfir. Í tilkynningu frá Heimavarnarliðinu, sem boðar til mótmælastöðunnar, segir að máttlitlar aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu til háborinnar skammar.

Samtökin sætti sig ekki við sjálfdæmi fjármálastofnanna við skuldauppgjör og eignaupptöku þeirra á heimilum landsmanna.  Ekki sé hægt að sætta sig við að heimilum landsmanna og velferð verði fórnað á altari fjárglæframanna, eins og það er orðað í tilkynningu. Þá neita samtökin alfarið að samþykkja að uppboð og nauðungarsölur heimila verði teknar upp á ný, án þess að íbúðalán verði leiðrétt aftur fyrir hrun. Næg sé eignaupptakan fyrir. (ruv.is)

Þessi mótmælastaða er mjög eðlileg Fólki finnst of lítið hafa verið gert til þess að leysa skuldavanda heimilanna.Það hefur margt verið gert en ekki nóg.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband